Ekki komin lokaniðurstaða um eldsupptök

Kona á sjötugsaldri lést í brunanum.
Kona á sjötugsaldri lést í brunanum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Rannsókn lögreglu á bruna sem varð í fjölbýlishúsi við Álfaskeið í Hafnarfirði fyrir rúmri viku síðan miðar vel og unnið er að því að fá lokaniðurstöðu um eldsupptök. 

Þetta segir Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar. 

Kona á sjötugsaldri lést í brunanum. Endanleg niðurstaða krufningar liggur ekki fyrir og því er dánarorsök ekki ljós, að sögn Gríms.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert