Stjarnan semur við einn og framlengir við tvo

Stjörnumennirnir sem skrifuðu undir.
Stjörnumennirnir sem skrifuðu undir. Stjarnan Körfubolti

Júlíus Orri Ágústsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við körfuknattleiksdeild Stjörnunnar. Júlíus er 21 árs gamall bakvörður sem er uppalinn hjá Þór Akureyri. 

Hann var fyrirliði Þórs aðeins 19 ára gamall og þykir með efnilegri leikmönnum landsins. Hann á að baki 52 leiki með Þór í efstu deild og spilaði einnig með Caldwell háskólanum í New Jersey á síðustu leiktíð. 

Gunnar Ólafsson hefur framlengt samning sinn við Stjörnuna, einnig til tveggja ára. Gunnar, sem er nýorðinn 29 ára kom til félagsins um áramótin 2019-2020 og hefur leikið 64 deildarleiki með félaginu og tvívegis orðið bikarmeistari. 

Hinn 27 ára gamli Tómas Þórður Hilmarsson skrifaði einnig undir nýjan tveggja ára samning við félagið. Tómas lék sinn fyrsta deildaleik með meistaraflokki Stjörnunnar árið 2011. Síðan þá hefur hann leikið 266 leiki með félaginu og unnið bikarmeistaratitilinn fimm sinnum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert