Evrópa of háð Bandaríkjunum í öryggismálum Kjartan Kjartansson skrifar 3. desember 2022 09:01 Sanna Marin lét ummælin falla á fundi hjá áströlsku hugveitunni Lowy Institute. Hún er nú í fyrstu opinberu heimsókn finnsks forsætisráðherra til Eyjaálfu. Vísir/EPA Innrás Rússa í Úkraínu sýnir að Evrópulönd séu of háð Bandaríkjunum um eigið öryggi, að mati Sönnu Marin, forsætisráðherra Finnlands. Hún vill að Evrópulönd auki vopnaframleiðslu og varnarviðbúnað sinn. „
Ég ætla að vera harkalega hreinskilin við ykkur, Evrópa er ekki nógu sterk núna. Við værum í vandræðum án Bandaríkjanna,“ sagði Marin á fundi hjá hugveitu í Sydney í Ástralíu þar sem hún er í opinberri heimsókn. Bandaríkin hafi þannig útvegað Úkraínu miklu magni af vopnum og fjárhags- og mannúðaraðstoð en Evrópa hafi ekki staðið sig nægilega í stykkinu. Margir bandarískir stjórnmálamenn hafi sagt henni að Evrópa þurfi að vera sterkari, að því er segir í frétt Reuters-fréttastofunnar. Jafnvel þó að framlag Evrópusambandsríkja sé mun minna en Bandaríkjanna hefur gengið hratt á hergagnaforða þeirra við að leggja Úkraínumönnum lið. „Við verðum að tryggja að við byggjum upp slíka getu þegar kemur að evrópskum vörnum, evrópskum varnariðnaði,“ sagði Marin. Þá gagnrýndi finnski forsætisráðherrann Evrópulönd sem hefðu reynt að styrkja tengslin við Rússland á undanförnum áratugum, þar á meðal með því að kaupa orku þaðan, í þeirri von að það drægi úr líkum á stríði. Sú nálgun hafi beðið algert skipsbrot, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins BBC. Frekar hefði átt að hlusta á raddir Póllands og Eystrasaltsríkja sem vöruðu við því að Rússland léti sér viðskiptatengsl og refsiaðgerðir í léttu rúmi liggja. Marin varaði einnig við því að sigur Rússlands í Úkraínu yrði öðrum árásarhneigðum ríkjum hvatning. Lýðræðisríki ættu að forðast að verða háð einræðisríkjum eins og Kína. „Ekki velkjast í vafa um það að ef Rússland vinnur í þessum hræðilega leik sínum þá verður það ekki eitt um valdeflast,“ sagði Marin.
Finnland Bandaríkin Innrás Rússa í Úkraínu NATO Evrópusambandið Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Innlent „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Innlent Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Erlent Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni Innlent Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Dregur saman með efstu frambjóðendum Innlent Fleiri fréttir Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka Sjá meira