„Fegurð er bara allskonar og fjölbreytileikinn er lang fallegastur“ Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 10. janúar 2022 18:16 Spegilmyndin eru nýjir lífsstílsþættir á Stöð 2. Stöð 2 „Þetta eru mannlífsþættir á léttu nótunum og snúast um heilsu - og fegrunargeirann hér á landi,“ segir Marín Manda Magnúsdóttir um nýju lífsstílsþættina sína Spegilmyndin. Fyrsti þáttur er sýndur á Stöð 2 í kvöld. „
Ég fer í gegnum fegrunartrend nútímakonunnar og fræðist um allskonar mismunandi hreyfingu, mataræði, kvenheilsu, tannheilsu, svefn og andlega líðan. Svo fæ ég ýmsa fagaðila til mín í spjall og fæ að fylgjast með fólki í meðferðum og aðgerðum,“ útskýrir Marín Manda. „Í þættinum í kvöld fer ég gegnum söguna, staðalímyndirnar og líkamsbyltingarnar og skoða hver þróunin er orðin í dag. Þetta er stútfullur þáttur af skemmtilegu fólki þar ég skoða förðun, augnháralengingar, hártísku og fleira.“ Marín Manda hafði lengi látið sig dreya um að fara út í þáttagerð fyrir sjónvarp. „Í sumar fæddist síðan þessi hugmynd eitt kvöldið þegar ég horfði á breskan þátt um fegrun kvenna og mér fannst vera talað um þetta allt saman á svo opinskáan hátt. Það er margt tabú að ræða hér á landi þar sem við erum lítið samfélag og því var ég bara einstaklega forvitin um hitt og þetta. Stuttu seinna fór ég í handritsgerð og framleiðslan fór á fulla ferð og nú er þetta orðið að veruleika.“ Í þáttunum ræðir Marín Manda við ýmsa sérfræðinga, meðal annars förðunarfræðinginn Hörpu Kára.Stöð 2 Hún segir að almennt sé mikið talað um útlit og útlitsdýrkun í okkar samfélagi. „Samfélagsmiðlarnir ýta oft undir óraunhæfar kröfur og þá verða ungar stúlkur gjarnan fyrir barðinu. Hins vegar tel ég að umræðan um útlitsdýrkun hafi gert það að verkum að við konur erum orðnar betri í að beita gagnrýnni hugsun varðandi þetta efni. Öll uppbyggileg umræða er góð og umræðan um jákvæða líkamsímynd hefur einnig hjálpað. Eins furðulegt og það er þá hefur útlit alltaf skipt manneskjuna máli. Það er hluti af sjálfsmyndinni okkar og hvernig við viljum að aðrir sjái okkur. Við þurfum bara að vera duglegri að sýna okkur mildi.“ Í þáttunum ræðir Marín Manda við fjölbreyttan hóp af áhugaverðu fólki. „Ég spjalla við næringarfræðing, markþjálfa, einkaþjálfara, sjúkraþjálfara, förðunarfræðing, naglafræðing, snyrtifræðinga, hársnyrti, tannlækni, svefnráðgjafa, sálfræðinga, kennara, húð - og lýtalækna og fleiri.“ Þáttastjórnandi Spegilmyndarinnar er tískuskvísan Marín Manda.Stöð 2 Marín Manda segir að hún hafi átt nokkur „aha“ augnablik við gerð þáttanna og að ýmislegt hafi komið á óvart. „Kannski einna helst að fegurð er bara allskonar og fjölbreytileikinn er langfallegastur,“ segir Marín Manda. Fyrsti þátturinn er eins og fyrr segir á dagskrá Stöðvar 2 í kvöld klukkan 19:05. „Þessi þáttur er mikið um konur en ekki einungis. Það munu eflaust margir karlmenn hafa gaman af að horfa og fræðast örlítið með okkur konunum,“ segir Marín Manda að lokum.
Tíska og hönnun Förðun Spegilmyndin Mest lesið Ísland lenti í síðasta sæti í Eurovision Lífið Íslendingar gáfu Króatíu 12 stig og Ísrael 8 stig Lífið Sviss sigurvegari Eurovision 2024 Lífið „Drull sama hvað einhver apaköttur segir“ Tónlist Fauk í Joost þegar hann var myndaður eftir flutninginn Lífið Fylgjast frekar með Falastinvision í mótmælaskyni Lífið „Þegar manni líður vel í eigin skinni skín það í gegn“ Tíska og hönnun „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Lífið Eurovision-vaktin: Nemo vann á dramatísku kvöldi í Malmö Lífið 93 ára og 90 ára söngfuglar á Suðurlandi Lífið Fleiri fréttir Ísland lenti í síðasta sæti í Eurovision Íslendingar gáfu Króatíu 12 stig og Ísrael 8 stig Sviss sigurvegari Eurovision 2024 Fylgjast frekar með Falastinvision í mótmælaskyni 93 ára og 90 ára söngfuglar á Suðurlandi Fauk í Joost þegar hann var myndaður eftir flutninginn Eurovision-vaktin: Nemo vann á dramatísku kvöldi í Malmö Norski stigakynnirinn hættir við Kvartar yfir Ísrael og vill að þeim verði vísað úr keppni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fréttatía vikunnar: Eldgos, knattspyrna og rapparar „Bangsar eru í raun partur af fjölskyldunni“ Spáir Ísrael sigri í Eurovision „Það gekk ekki hvað henni leið illa“ Páfiðrildi við Krónuna í Skeifunni Bashar Murad endurgerir palestínskt lag föður síns Ísrael skyndilega talið líklegt til að vinna Eurovision Fékk morðhótanir og ætlar að leita réttar síns Baulað á Ísrael sem flaug áfram í úrslitin Bieber-hjónin eiga von á barni Baulað á keppanda Ísrael á æfingu Tónlistarframleiðandinn Steve Albini látinn Backstreet-strákur kominn aftur til Íslands Byrjaði að hlaupa til að sýna fyrrverandi í tvo heimana „Sögulegir skór“ Mari Järsk á uppboði Hafa komist að samkomulagi vegna andláta á Astroworld Í lagi að sætta sig við að vera barnlaus „Mér finnst mikilvægt að ég segi frá minni hlið“ Náttúrulegar bótox-meðferðir án sprautunála „Ef ég gæti hnoðað einn úr tíu bestu væri það himnaríki á jörð“ Sjá meira