Pútín fór óvænt til Maríupól í nótt Samúel Karl Ólason skrifar 19. mars 2023 08:05 Vladimír Pútín á Krímskaga í gær. EPA/Forsetaembætti Rússlands Vladimír Pútín, forseti Rússlands, fór í óvænta heimsókn til Maríupól í Úkraínu í nótt. Þetta er í fyrsta sinn sem Pútín heimsækir nýlega hernumin svæði í Úkraínu, en hann ferðaðist til Krímskaga í gær.
Ríkismiðlar Rússlands hafa sýnt myndbönd af heimsókn Pútíns og segir fréttaveitan RIA, sem er í eigu rússneska ríkisins, að hann hafi farið til Maríupól með þyrlu í nótt. Þar heimsótti hann tónleikahús og ræddi við embættismenn og íbúa um það hvernig verið er að endurreisa borgina í kjölfar þess að hersveitir Rússa jöfnuðu hana við jörðu. RIA segir einnig að Pútín hafi hitt íbúa Maríupól út á götu í nótt og að þau hafi boðið honum að heimsækja þau, sem hann hafi gert. And here Putin visits some locals who tell him they were praying for him and say Russia built them a little piece of heaven to replace their destroyed apartments. pic.twitter.com/pXtUhalSKx— max seddon (@maxseddon) March 19, 2023 Blaðamaður Wall Street Journal deildi einnig myndbandi af Pútín hitta fólkið og segir litlar líkur á því að um raunverulega íbúa borgarinnar sé að ræða. Um ár er síðan Rússar gerðu loftárás á leikhús í Maríupól þar sem talið er að minnst þrjú hundruð óbreyttir borgarar hafi leitað sér skjóls frá sprengjuregninu. Frá því Rússar hertóku Maríupól hefur nöfnum á götum verið breytt og hafa þær fengið sömu nöfn og þær höfðu á tímum Sovétríkjanna. Þar að auki hefur minnisvarði um Holodomor, manngerða hungursneyð frá 1932 til 1933, verið rifinn niður. Milljónir Úkraínumanna dóu úr hungri vegna ástandsins sem leiðtogum Sovétríkjanna er kennt um. Sjá einnig: Pútin heldur upp á ólöglega innlimun Krímskaga Hersveitir Rússa náðu snemma að Maríupól í innrás þeirra í Úkraínu en hún er um fjörutíu kílómetra frá landamærum Rússlands og er mikilvæg hafnarborg við Asóvhaf. Við það hófst 86 daga umsátur þar sem gerðar voru linnulausar stórskotaliðs- og loftárásir á borgina. Borgin var svo gott sem lögð í rúst en óljóst er hvort raunverulegt mannfall meðal óbreyttra borgara muni nokkurn tímann líta dagsins ljós. Eftir vettvangsferðina til Maríupól mun Pútín hafa farið til Rostov-on-Don og heimsótt þar stjórnstöð fyrir innrás Rússa í Úkraínu. Dómarar Alþjóðlega sakamáladómstólsins gáfu á föstudaginn út handtökuskipun á hendur Pútín en hann er sakaður um að bera ábyrgð á því að fjölmörgum börnum hafi rænt í Úkraínu og þau flutt til Rússlands.
Úkraína Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Vladimír Pútín Tengdar fréttir Biden segir augljóst að Pútín sé sekur um stríðsglæpi Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, fagnar því að dómarar Alþjóðlega sakamáladómstólsins (ICC) hafi í gær gefið út handtökuskipun á hendur Vladimír Pútín, forseta Rússlands, fyrir stríðsglæpi í Úkraínu. Pútín er sakaður um að bera ábyrgð á því að fjöldi barna hafi verið flutt frá Úkraínu til Rússlands en Biden sagði augljóst að svo væri. 18. mars 2023 09:57 Xi heimsækir Pútín eftir helgi Xi Jinping Kínaforseti mun halda í opinbera heimsókn til Rússlands í næstu viku þar sem hann mun meðal annars eiga fundi með Vladimír Pútín Rússlandsforseta. 17. mars 2023 07:45 Sagðir ætla að höfða mál gegn Rússum fyrir stríðsglæpi Saksóknarar Alþjóðlega sakamáladómstólsins (ICC) ætla að höfða tvö mál gegn Rússum vegna ódæða þeirra í Úkraínu. Saksóknarar vilja leggja fram nokkrar handtökuskipanir vegna stríðsglæpa en rannsakendur dómstólsins hafa um mánaða skeið verið að störfum í Úkraínu. 13. mars 2023 15:23 Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Af hverju vilja Úkraínumenn halda Bakhmut? Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að framtíð Úkraínumanna muni ráðast á víglínunum í austurhluta landsins. Hann segir stöðuna þar vera mjög erfiða en það þurfi að gera út af við hernaðarmátt Rússa og það muni Úkraínumenn gera. 14. mars 2023 14:01 Mest lesið María Sigrún látin fara úr Kveik Innlent Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Innlent Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Innlent Svona var stemmningin á lokaspretti forsetaefnanna í Hörpu Innlent Svona var Pallborðið með Arnari Þór, Ásdísi Rán og Ástþóri Innlent „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Innlent Dregur framboðið til baka Innlent „Ísdrottningin myndi bráðna ef hér kæmi kjarnorkusprengja“ Innlent Mikil tíðindi í glænýrri könnun Innlent Viktor stal senunni: Hefði ekki haft tíma til að safna ef hann væri í vinnu Innlent Fleiri fréttir Rýma dómshús vegna sprengjuhótunar Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Sjá meira
Biden segir augljóst að Pútín sé sekur um stríðsglæpi Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, fagnar því að dómarar Alþjóðlega sakamáladómstólsins (ICC) hafi í gær gefið út handtökuskipun á hendur Vladimír Pútín, forseta Rússlands, fyrir stríðsglæpi í Úkraínu. Pútín er sakaður um að bera ábyrgð á því að fjöldi barna hafi verið flutt frá Úkraínu til Rússlands en Biden sagði augljóst að svo væri. 18. mars 2023 09:57
Xi heimsækir Pútín eftir helgi Xi Jinping Kínaforseti mun halda í opinbera heimsókn til Rússlands í næstu viku þar sem hann mun meðal annars eiga fundi með Vladimír Pútín Rússlandsforseta. 17. mars 2023 07:45
Sagðir ætla að höfða mál gegn Rússum fyrir stríðsglæpi Saksóknarar Alþjóðlega sakamáladómstólsins (ICC) ætla að höfða tvö mál gegn Rússum vegna ódæða þeirra í Úkraínu. Saksóknarar vilja leggja fram nokkrar handtökuskipanir vegna stríðsglæpa en rannsakendur dómstólsins hafa um mánaða skeið verið að störfum í Úkraínu. 13. mars 2023 15:23
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Af hverju vilja Úkraínumenn halda Bakhmut? Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að framtíð Úkraínumanna muni ráðast á víglínunum í austurhluta landsins. Hann segir stöðuna þar vera mjög erfiða en það þurfi að gera út af við hernaðarmátt Rússa og það muni Úkraínumenn gera. 14. mars 2023 14:01