Hárstofuhrellirinn fer um land allt og gerir hárgreiðslumeistara gráhærða Jakob Bjarnar skrifar 2. desember 2020 15:23 Afar sérkennilegt mál er nú komið upp en kona sem virðist vera með einskonar hárgreiðsluáráttu hefur farið um landið allt, lagt leið sína á hárgreiðslustofur, fengið klippingu en krefst svo ætíð endurgreiðslu. Kona nokkur virðist haldin einskonar hárgreiðsluáráttu því hún fer um án afláts milli hárgreiðslustofa og er komin víða á bannlista.
Ónefnd kona hefur stundað það, að því er virðist árum saman að flakka á milli hárgreiðslustofa; fá lit, klipp, strípur, allt mögulegt – dvelur á stofunum klukkutímunum saman og fær ráðgjöf – fer ánægð en hringir svo yfirleitt aftur eða sendir tölvupóst og segist ósátt. „Já, hún fer út ánægð en hringir svo ósátt daginn eftir og vill fá endurgreitt,“ segir Þuríður Halldórsdóttir eigandi Ónix Hár – hárgreiðslustofu í Þverholtinu. En þau þar hafa fengið konuna í stólinn og er hún nú komin á bannlista þar sem víðar. Þuríður veit ekki hvort hún á að hlæja eða gráta. Segir málið allt tragíkómískt. Hún ýmist neitar að borga eða borgar og hefur síðan samband og fer fram á endurgreiðslu. Og lætur þá mömmu sína, eða „Rakel systur sína“, jafnvel lögmann hringja eða senda póst. En talar einatt af sér og kemur þá í ljós að þetta er hún sjálf í símanum og er þá að reyna að villa á sér heimildir. Orðin fræg um land allt „Já, hárgreiðslukonurnar eru alveg vissar um að þá sé þetta konan sjálf. Við viljum yfirleitt fá að laga ef um það er beðið eða leiðrétta en hún vill bara fá endurgreitt,“ segir Þuríður. En fæstar láta það eftir henni. Ekki lengur. „Þetta hlýtur að vera einhver hárgreiðsluárátta,“ segir Þuríður og vísar til þess að athæfi konunnar hefur staðið yfir árum saman. Og um land allt. Þuríður Hildur á Ónix Hár. Hún fagnar samstöðunni því vont sé ef kollegar lendi í slíkum hrelli og konan hefur reynst. En það gæti reynst erfitt fyrir hana að fá jólaklippingu í ljósi þess að búið er að vara við konunni og hún víða komin á svartan lista. „Þetta eru um sextíu hárgreiðslustofur sem hafa komist í kast við hana. Akureyri, Húsavík, Selfoss … Þetta er eiginlega alveg ótrúlegt. Svo bara hlær maður að þessu, þetta er svo skrítið.“ Ekki við þetta búandi En nú er komin upp samstaða, orðið gengur milli hárgreiðslustofa þar sem varað er við hárstofuhrellinum. Þuríður fagnar því og segir að jafnframt sé komið upp kerfi, ákveðin símanúmer eru á válista. En konan leikur reyndar þann leik að hringja úr mismunandi símanúmerum og panta sér tíma undir ólíkum nöfnum. Þannig að erfitt getur reynst að verjast henni. Þuríður segir þetta einstakt tilfelli og ekki liggi fyrir hvort um sé að ræða blákalda og kaldrifjaða lygi, og einhvers konar hrappshátt eða hvort um sé að ræða áráttu sem lýsir sér þá þannig að viðkomandi trúi þessu sjálf. En fyrir mestu er að nú láti hárgreiðslufólk boð á milli sín ganga í sérstökum hópi á Facebook. Og hægt að vara við óalandi og óferjandi viðskiptavinum. Því við þetta sé ekki hægt að búa. „Í vor sagðist einhver vera hjúkrunarfræðingur, fór í framlínuna en reyndist svo ekki vera sú sem hún sagðist vera. Við héldum fyrst að þetta gæti verið sama manneskjan. En svo reyndist þó ekki vera.“ Þuríður segist reyndar hafa heyrt áhyggjuraddir þess efnis, í ljósi hinnar miklu samstöðu meðal hárgreiðslufólks, að það gæti reynst erfitt fyrir konuna að fá jólaklippingu.
Neytendur Verslun Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Innlent Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Innlent Karlremba sé komin í tísku Innlent Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Innlent Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Innlent Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Innlent Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Innlent Helga lenti einnig í vandræðum Innlent Líklegt að það styttist í brotmörk Innlent Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Innlent Fleiri fréttir Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Lögreglan lofar góðu vegaeftirliti á Suðurlandi í sumar Landskjörsstjórn tilkynnir á morgun hvaða listar eru gildir Mögulega að hægjast á landrisi í Svartsengi Karlremba sé komin í tísku Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Sprengisandur: Peningastefna, ESB og lagareldi Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Líklegt að það styttist í brotmörk Helga lenti einnig í vandræðum Eiríkur og Ástþór fá frest til að bæta við undirskriftum Hættuástand í Grindavík og æsispennandi forsetakosningar Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Handteknir á hlaupum eftir vopnað rán í Reykjavíkurapóteki Björk varar við frumvarpi um sjókvíeldi Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Mikil gleði þegar Bergur komst í mark Segir engin annarleg sjónarmið að baki ákvörðun RÚV Hraun mjakast yfir varnargarð Ný gossprunga geti opnast fyrirvaralaust á næstunni Allt að gerast í Vík í Mýrdal um helgina Stór gossprunga gæti opnast fyrirvaralaust Fylgi Höllu Hrundar ekki fast í hendi Tíu kílómetrar eftir af hundrað: Gangan miklu erfiðari en hann óraði fyrir 800 milljóna króna hreinsistöð byggð á Selfossi Sveddi sagður með tengsl við ítölsku mafíuna Sjá meira