„Ekkert nýtt og engin geimvísindi“ Sindri Sverrisson skrifar 23. mars 2023 22:37 Arnór Ingvi Traustason í baráttunni í Bosníu í kvöld þar sem Ísland varð að sætta sig við 3-0 tap. EPA-EFE/FEHIM DEMIR Arnór Ingvi Traustason sagði engin geimvísindi fólgin í því fyrir sig að spila í nýju hlutverki í landsliðinu sem aftasti miðjumaður, í 3-0 tapinu gegn Bosníu í kvöld. Hann segir enga taugaveiklun í liðinu vegna úrslitanna. „
Við vorum bara ekki nægilega góðir. Ekki nægilega þéttir. Það gekk nánast ekkert upp. Þeir leyfðu okkur að hafa boltann og biðu eftir að við gerðum okkar mistök. Við áttum að loka á skotið í þriðja markinu en þeir nýttu færin sín tvö í fyrri hálfleik vel,“ sagði Arnór Ingvi í viðtali við Vísi strax eftir leik. „Við byrjuðum þetta ekki nægilega vel. En það er ekkert panik. Þetta er rétt að byrja og þetta er fyrsti leikur. Það er nóg eftir. Þar liggur okkar fókus,“ sagði Arnór. Aðspurður hvort eitthvað óöryggi hefði verið í vörninni, án sterkra manna á borð við Aron Einar Gunnarsson og Sverri Inga Ingason, svaraði Arnór: „Nei, alls ekki. Við vorum bara ekki nægilega þéttir. Það fór einhvern veginn allt í gegnum okkur, sem við viljum alls ekki. Þeir bara refsuðu okkur.“ Spurður út í stöðu sína sem aftasti miðjumaður svaraði Arnór, sem nær alltaf hefur leikið framar á vellinum í íslenska liðinu: „Ég var alveg klár. Það er bara undir mér komið að taka þessa stöðu. Ég hef spilað hana aðeins með Norrköping, þar sem við spilum með tvær sexur en ekki eina sexu. Þetta er ekkert nýtt og engin geimvísindi.“ Arnór sagði að nú færi íslenska liðið upp á hótel, jafnaði sig og færi yfir leikinn, og myndi svo vinna Liechtenstein á sunnudaginn. Hann vildi ekki gera of mikið úr þýðingu leiksins í kvöld þó að ljóst sé að baráttan um að komast upp úr riðlinum verði sennilega við Bosníu. „Það er hægt að hugsa þetta sem úrslitaleik og eitthvað en þetta er bara einn leikur, fyrsti leikur í riðlinum, og það er nóg eftir. Ekkert panik.“
Landslið karla í fótbolta EM 2024 í Þýskalandi Tengdar fréttir Kallað eftir höfði Arnars á Twitter: „Gerðu öllum greiða og segðu af þér“ Skoðanir Íslendinga á Twitter voru á einn veg eftir og á meðan á leik Íslands og Bosníu stóð í undankeppni EM karla í fótbolta í kvöld. Kallað var ákaft eftir því að Arnar Þór Viðarsson hætti sem þjálfari íslenska liðsins. 23. mars 2023 22:15 Umfjöllun: Bosnía - Ísland 3-0 | Ný undankeppni en sömu vandamálin Ísland byrjaði undankeppni EM 2024 á 3-0 tapi gegn Bosníu á Bilino Polje-vellinum. Varnarleikur Íslands var hreinasta hörmung sem skilaði Bosníu þremur mörkum. 23. mars 2023 21:45 Mest lesið Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Fótbolti Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra Körfubolti „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ Körfubolti „Vakna í hádeginu á morgun og fer að hugsa um Valsarana“ Körfubolti LA Rams velja nýliðana í 16 milljón dollara glæsivillu Sport „Frábær úrslit fyrir okkur og félagið“ Fótbolti „Fyrst og fremst var þetta vinnuframlag frá öllum“ Fótbolti Ivan Toney á innkaupalista Manchester United Fótbolti Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Körfubolti Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Körfubolti Fleiri fréttir „Frábær úrslit fyrir okkur og félagið“ „Fyrst og fremst var þetta vinnuframlag frá öllum“ Ivan Toney á innkaupalista Manchester United Júlíus Magnússon með sitt fyrsta mark fyrir Fredrikstad Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Einstefna í Brighton Uppgjörið: Keflavík - Breiðablik 2-1| Sami Kamel afgreiddi Blika KR fékk ungan Svía fyrir gluggalok Bikarmeistararnir örugglega áfram eftir smá hikst 350 þúsund krónur i sektir og tveir fá þriggja mánaða bann Tíu Grindvíkingar unnu í Eyjum Æfði með FH en fékk ekki samning og skipti síðan í Hauka Bikarmeistararnir bjóða frítt á völlinn „Hún á eftir að fá að skína aðeins meira“ Hamrén hafnaði 388 milljóna samningi Krókur Liverpool á móti bragði Krakkalæti og langt bann eða gult og málið dautt? Taka gamlar hetjur fram skóna í bikarnum í dag? Bayern hyggst ráða manninn sem United losaði sig við „Á sama tíma í fyrra held ég að þetta hafi verið gult“ „Skrítið að spila á móti liði sem þú varst í þegar þú varst ungur“ Lærisveinninn laut í lægra haldi Tap Hákons tefur fögnuð PSG Palace á mikilli siglingu Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Bruno sneri taflinu við gegn botnliðinu Óvænt U-beygja í Katalóníu Mbappé í stuði er PSG gott sem tryggði titilinn Alfons og félagar nálgast Meistaradeildarsæti Sjá meira
Kallað eftir höfði Arnars á Twitter: „Gerðu öllum greiða og segðu af þér“ Skoðanir Íslendinga á Twitter voru á einn veg eftir og á meðan á leik Íslands og Bosníu stóð í undankeppni EM karla í fótbolta í kvöld. Kallað var ákaft eftir því að Arnar Þór Viðarsson hætti sem þjálfari íslenska liðsins. 23. mars 2023 22:15
Umfjöllun: Bosnía - Ísland 3-0 | Ný undankeppni en sömu vandamálin Ísland byrjaði undankeppni EM 2024 á 3-0 tapi gegn Bosníu á Bilino Polje-vellinum. Varnarleikur Íslands var hreinasta hörmung sem skilaði Bosníu þremur mörkum. 23. mars 2023 21:45
Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Körfubolti
Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Körfubolti