Freyr kveður KSÍ: Seinustu fimm mínúturnar á Puskas Arena munu aldrei gleymast Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. nóvember 2020 12:30 Freyr Alexandersson hughreystir Ara Frey Skúlason eftir leik Íslands á Wembley á miðvikudagskvöldið sem var möguleika síðasti leikur þeirra beggja. Getty/Michael Regan
Freyr Alexandersson er að hætta sem aðstoðarþjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta og hann er um leið að hætta að vinna fyrir Knattspyrnusamband Íslands eftir mjög viðburðarík og eftirminnileg sjö ár. Freyr Alexandersson tók þátt í gullskeiði íslenskrar knattspyrnu á tíma sínum hjá Knattspyrnusambandi Íslands og fór á stórmót sem hluti af bæði karla- og kvennalandsliðinu. Á tíma sínum hjá KSÍ þá náði Freyr nefnilega að taka þátt í því að koma báðum íslensku A-landsliðunum á stórmót og var svo ótrúlega nálægt því að koma íslenska karlalandsliðinu á þriðja stórmótið í röð fyrir nokkrum dögum. Freyr Alexandersson skrifaði undir sinn fyrsta samning við KSÍ þegar hann tók við íslenska kvennalandsliðinu haustið 2013. Hann hefur unnið fyrir sambandið síðan, var kvennalandsliðsþjálfari í fimm ár áður en hann gerðist aðstoðarþjálfari Erik Hamrén hjá karlalandsliðinu haustið 2018. Freyr skrifaði stuttan fallega kveðjupistil á fésbókina í dag þar sem hann gerði upp þessi sjö ár hjá Knattspyrnusambandi Íslands. „Ekki óraði mér fyrir hvers lags ferðalag biði mín næstu sjö árin. Breytingin á sambandinu á þessum sjö árum er í raun ólýsanleg en á þessum tíma fékk ég að upplifa og taka þátt í því sem má kalla gullskeið Íslenskrar knattspyrnu,“ skrifaði Freyr. Freyr hélt nýverið upp á 38 ára afmælið sitt og hefur þrátt fyrir ungan aldur náð því að fara á þrjú stórmót með íslensku A-landsliðunum. „Í öll skiptin var ég í stórum hlutverkum sem voru bæði krefjandi en ekki síður gríðarlega gefandi. Ég mun alltaf minnast þessa tíma með þakklæti og gleði í hjarta,“ skrifaði Freyr. Hann og Erik Hamrén voru aðeins hársbreidd frá því að koma íslenska karlalandsliðinu á EM næsta sumar enda var Ísland 1-0 yfir á móti Ungverjum á 87. mínútu leiksins. „Með velgengni fylgja alltaf væntingar og sársaukinn sem fylgir því að komast ekki á lokamót er óbærilegur. Það hef ég einnig fengið að upplifa tvisvar sinnum og í bæði skiptin á loka augnablikum leiksins en þessar seinustu fimm mínútur á Puskas Arena munu aldrei gleymast. Spurningin er bara hvað maður á að gera við slíkar tilfinningar, það eina sem hægt er að gera er að læra af þeim. Um það snýst þessi leikur. Að notfæra sér öll augnablik til þess að vera betri. Eins og staðan er í dag er komið að ferðalokum hjá mér með Íslenska landsliðinu,“ skrifaði Freyr. Freyr er að kveðja KSÍ núna en það er að heyra á honum að hann ætli sér að vinna aftur fyrir sambandið og íslenska knattspyrnu. „Eitt er víst, ég lagði líf og sál í starfið. Það er og á að vera það eina sem er í boði þegar þú vinnur fyrir Ísland. Annað veit ég, reynslan sem ég hef áunnið mér mun nýtast Íslandi aftur. Hvenær getur framtíðin ein leitt í ljós. Þangað til næst. Takk fyrir mig,“ skrifaði Freyr að lokum.Það er verður að teljast mjög líklegt að Knattspyrnusamband Íslands mun leita aftur til Freys í framtíðinni en hvort það verður sem næsti A-landsliðsþjálfari karlalandsliðs Íslands eða eftir nokkur ár verður að koma í ljós.
EM 2020 í fótbolta Þjóðadeild UEFA KSÍ Mest lesið „Dómur þarna í restina sem ákveður úrslitin“ Körfubolti Ræðir veru sína í rússnesku fangelsi í nýrri bók Körfubolti Aþena upp í Subway-deildina Körfubolti Gat ekki staðið upp til að taka við bikarnum Sport „Maður hefur verið milli tannanna á fólki síðan maður var ungur“ Íslenski boltinn „Gamaldags boxbardagi frá fyrstu mínútu“ Körfubolti Þurfa leyfi til að taka þátt í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð Fótbolti „Höfum vaxið með hverjum leik“ Fótbolti Telja að Man United hafi saknað leiðtogahæfileika Martínez Enski boltinn Mari Järsk sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Fleiri fréttir „Höfum vaxið með hverjum leik“ Dortmund í úrslit eftir sigur í París Telja að Man United hafi saknað leiðtogahæfileika Martínez Þurfa leyfi til að taka þátt í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð Arnar í tveggja leikja bann Aðeins einn uppalinn Valsmaður í Bestu deild karla „Maður hefur verið milli tannanna á fólki síðan maður var ungur“ „Tveir Víkingar? Ég er bara hissa“ Adam hundfúll og Arnar beint í símann Vatnstjónið vísar Stólum til Akureyrar Forest í bullandi fallhættu vegna bulls í fjármálum Napoli í kapphlaupið um Albert Segir að Viðar hafi ekki mætt á æfingu á leikdegi Segir að Casemiro hafi verið aðhlátursefni gegn Palace Sjáðu aukaspyrnumark Gylfa, umdeildan rangstöðudóm og rauðu spjöldin „Síðasti naglinn í kistu Ten Hag“ „Arnar fór langt yfir strikið“ en nafni hans oftar með dónaskap Bielsa ætlar að velja áhugamann í landsliðshóp Úrúgvæ Ten Hag: Leikmennirnir hefðu átt að halda áfram að berjast líkt og stuðningsfólkið „Segir þeim að hætta þessu fokking rugli“ „Höfum engu að tapa núna“ Hákon Arnar fékk gult þegar Lille henti frá sér unnum leik Uppgjör, viðtöl og myndir: Breiðablik - Valur 2-3 | Manni færri héldu gestirnir út Crystal Palace lék sér að Man United Van Dijk vill hjálpa til við að skrifa næsta kafla Liverpool Sara Björk hafði betur gegn Alexöndru Eyddi öllum Liverpool-myndum Lýkur Gylfi markaþurrð Vals á Kópavogsvelli? Nánast uppselt á leik kvöldsins Dómarinn verður með myndavél á höfðinu Sjá meira