Malta borgar ferðamönnum til að koma í sumar Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 9. apríl 2021 19:26 Yfirvöld á Möltu vilja hvetja ferðamenn til að ferðast til eyjanna. Getty Yfirvöld í Möltu stefnir á að greiða erlendum ferðamönnum, sem halda til á eyjunni í meira en þrjá daga í sumar, allt að 200 evrur, sem eru um 30 þúsund íslenskar krónur. Þau segja aðgerðirnar til þess gerðar að koma ferðaþjónustu eyjunnar á réttan kjöl en atvinnugreinin hefur tekið dýfu niður á við vegna kórónuveirufaraldursins.
Clayton Bartolo, ferðamálaráðherra, tilkynnti aðgerðirnar í dag og sagði hann allir ferðamenn sem bókuðu hótelgistingu hjá hótelum á eyjunni fengju styrkinn. Miklar takmarkanir hafa verið í gildi á eyjunni en fyrirséð er að þeim verði aflétt þann 1. júní næstkomandi. Samkvæmt World Travel and Tourism Council má rekja meira en 27 prósent þjóðarframleiðslu eyjunnar til ferðaþjónustunnar. Hún hefur hins vegar orðið illa úti vegna faraldursins. Árið 2019 heimsóttu meira en 2,7 milljónir erlendra ferðamanna eyjuna en sú tala hefur fallið um 80 prósent síðan í mars 2020. Bartolo sagði í dag að bóki ferðamenn gistingu á fimm stjörnu hóteli á eyjunni muni hver einstaklingur fá 100 evrur frá ferðamálaráðuneytinu að gjöf og hótelið muni gefa 100 evrur til viðbótar. Þá munu þeir sem bóka gistingu á fjögurra stjörnu hóteli fá alls 150 evrur og þeir sem bóka gistingu á þriggja stjörnu hóteli munu fá 100 evrur að gjöf. Hafa gefið 42 prósentum fullorðinna fyrstu bólusetningu Fjárhæðin hækkar um 10 prósent þegar hótelherbergi eru bókuð á eyjunni Gozo, sem er um þrjá kílómetra frá meginlandi Möltu. „Aðgerðirnar eru til þess fallnar að koma hótelum á Möltu í góða samkeppnisstöðu þegar ferðamannastraumurinn hefst á ný,“ sagði Bartolo. Stjórnvöld stefna að því að 35 þúsund ferðamenn komi til landsins í sumar. Maltverjum hefur tekist einstaklega vel að bólusetja gegn veirunni en Malta er það Evrópuríki sem tekist hefur að bólusetja stærst hlutfall almennings. Að minnsta kosti 42 prósent fullorðinna hafa nú fengið fyrsta skammt bólusetningar. Þá hefur kórónuveirutilfellum farið ört fækkandi og hafa stjórnvöld hvatt Evrópusambandið til þess að taka í gildi bólusetningarvottorð í von um að ferðamenn geti komið til landsins. Þá sagði Bartolo í dag að viðræður séu hafnar við yfirvöld á Bretlandi um að hvetja til ferðalaga milli landanna tveggja.
Ferðalög Malta Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Nöfn þeirra sem létust í Eyjafirði Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Svona var Pallborðið með mökunum Innlent Apple biðst afsökunar á auglýsingu fyrir nýjan iPad Viðskipti erlent Óhapp í fyrsta sinn í 25 ára sögu Innlent Krefjast þess að HÍ beiti sér með sama hætti gegn Ísrael og Rússlandi Innlent Dóra vill ekki búa við umræðu byggða á „falsvitnum“ Innlent Raðrúðubrjóturinn enn á ferð í miðborginni Innlent Flóttamannastofnun SÞ gerir athugasemdir við útlendingafrumvarpið Innlent Laus úr haldi en enn grunaður um græsku Innlent Fleiri fréttir Hefja árásir nærri Karkív Selenskí bauð Bjarna á friðarfund í Sviss Reyndu aftur að fá málið fellt niður vegna Stormy Daniels Segja lögregluþjón hafa bankað á rangar dyr og skotið ungan mann Ísraelsstjórn vígreif þrátt fyrir viðsnúning Bandaríkjamanna Færeyingar áforma 4.500 króna aðgangseyri á alla ferðamenn Börnum safnað saman og þau skotin Skotið á íbúa Rafah og heilbrigðiskerfi Gasa hrunið Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Lýsa hræðilegu ofbeldi fyrir sjóslys þar sem tugir létu lífið Takmarkar hernaðaraðstoð verði gerð árás á Rafah Grænlendingar segja sig úr Norðurlandaráði Skýrustu merkin um lofthjúp um bergreikistjörnu til þessa Enn og aftur tafir á málaferlum gegn Trump Umfangsmestu árásir Rússa í nokkrar vikur Trump blótaði þegar Daniels lýsti meintu samneyti þeirra Hrina árása á þýska stjórnmálamenn veldur áhyggjum Um 800.000 Evrópubúar taldir hafa fallið fyrir kínverskri svikamyllu Bandaríkjamenn stöðvuðu vopnasendingu til Ísrael í síðustu viku Annar hvirfilbylurinn í Oklahoma á rúmum mánuði Segir Bandaríkjamenn þurfa að þrýsta á Ísraela Skotárás við heimili Drake Stormy Daniels í dómsal með Trump Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Reynt að siga lögreglu á vitni í málinu gegn Trump Fundu hlerunarbúnað í fundarherbergi ráðherra Pútín hefur fimmta kjörtímabilið með meiri völd en áður Sagðist saklaus af því að hafa drepið með eitruðum sveppum Verðhækkanir á döner-kebab eitt helsta áhyggjuefni Þjóðverja Geimskoti Starliner var frestað í nótt Sjá meira