Sammála um að uppfæra Samgöngusáttmálann Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 14. mars 2023 15:58 Umferð á höfuðborgarsvæðinu. Vísir/Vilhelm. Ríkið og sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa ákveðið að hefja undirbúning að uppfærslu Samgöngusáttmálans svokallaða með að markmiði að viðauki vð sáttmálann verði gerður. Upphafleg skuldbinding vegna sáttmálans hefur farið úr 120 milljarða króna í 153 milljarða.
Á vef Stjórnarráðsins segir að fyrir nýliðna helgi hafi verkáætlun um umrædda uppfærslu verið samþykkt á fundi oddvita stjórnarflokkanna þriggja í ríkisstjórn með bæjarstjórum Garðabæjar, Seltjarnarness, Hafnarfjarðar, Mosfellsbæjar og Kópavogs auk borgarstjóra Reykjavíkur og forsvarsmönnum Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Aukinn kostnaður Árið 2019 undirrituðu ríkið og sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu sáttmála um samgöngur á höfuðborgarsvæðinu, Samgöngusáttmálan svokallaða. Þegar hann var kynntur til leiks var rætt um að á tímabilinu yrðu 52,2 milljarðar lagðir í stofnvegi, 49,6 milljarðar í innviði Borgarlínu og almenningssamgöngur, 8,2 milljarðar í göngu- og hjólastíga, göngubrýr og undirgöng og 7,2 milljarðar í bætta umferðarstýringu og sértækar öryggisaðgerðir. Auk þess var lagt upp með að ríkið myndi leggja til 45 milljarða og sveitarfélög fimmán milljarða. Gert var ráð fyrir að sérstök fjármögnun stæði straum af 60 milljörðum krónum. Samgöngumálin á höfuðborgarsvæðinu hefur hins vegar verið í brennidepli undanfarna mánuði en meðal þeirra sem hafa gagnrýnt samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins eða Borgarlínu eru borgarfulltrúar og jafnvel þingmenn Sjálfstæðisflokksins. Miklar verðhækkanir vegna aukinnar verðbólgu og ýmissa annarra vandamála hafa leitt til þess að áætlaður kostnaður við sáttmálann hefur hækkað. Í minnisblaði um uppfærslu sáttmálans er komið inn á þetta. „Verðlag í verklegum framkvæmdum hefur hækkað umfram almenna verðlagsþróun . Vísitala sáttmálans hefur hækkað um 28%, á sama tíma og vísitala neysluverðs hefur hækkað um 22%. Skuldbinding sáttmálans hefur af þeim sökum hækkað úr 120 ma.kr. í um 153 ma.kr.,“ segir í minnisblaðinu. Því hefur verið ákveðið að ráðast i gerð viðauka við sáttmálann og mun vinna við það hefjast í þessum mánuði með það að markmiði að hægt sé að skrifa undir viðaukann í sumar. „Betri samgöngum verður falið að uppfæra framkvæmdatöflu sáttmálans, þ.m.t. tíma- og kostnaðaráætlanir. Einnig að meta áhrif stofnvega- og Borgarlínuinnviða m.t.t. markmiða um greiðar samgöngur, fjölbreytta ferðamáta, kolefnishlutlaust samfélag og umferðaröryggi. Á þeim grunni verði sett mælanleg undirmarkmið og árangursvísar,“ segir á vef Stjórnarráðsins. Í umræddu minnisblaði kemur fram að ýmsar áskoranir séu fyrir hendi varðandi sáttmálann, ekki bara kostnaðarhækkanir. „Kostnaður við einstakar framkvæmdir var vanáætlaður, jafnvel umfram upphaflega áætlað óvissustig. Hluti kostnaðaráætlana sem lágu fyrir við gerð Samgöngusáttmálans byggðu á eldri útfærslum, svo sem Arnarnesvegur og mislæg gatnamót Bústaðavegar og Reykjanesbrautar. Kostnaðaráætlun vegna Sæbrautarstokks lá ekki að fullu fyrir á þeim tíma sem Samgöngusáttmálinn var undirritaður. Kostnaðarmat við verkefnið „Sæbraut – Holtavegur Stekkjabakki“ miðaðist við mun minna verkefni. Í kostnaðarmati Borgarlínu var þó gert ráð fyrir brú yfir Sæbraut. Sæbrautarstokkur er mjög mikilvægt verkefni m.a. m.t.t. tilkomu Sundabrautar. Þá er stokkurinn grundvallarforsenda í staðarvali Björgunarmiðstöðvar á Kleppsreit,“ segir í minnisblaðinu. Tímalína við gerð viðaukans Mars: Stýrihópur samþykkir minnisblað og ræði sameiginlegan skilning þess. Viðræðuhópur um Samgöngusáttmála skipaður, Betri samgöngur hefja vinnu við þá verkliði sem að þeim snýr. Viðræðuhópur um rekstur taki aftur upp störf með skilgreindar forsendur. Apríl: Betri samgöngur vinna að nauðsynlegum greiningum. Viðræðuhópur um rekstur skilar af sér endanlegum tillögum að samkomulagi. Maí: Viðræðuhópur um Samgöngusáttmála skilar af sér tillögum að uppfærslu hans. Tillaga að uppfærslu Samgöngusáttmála liggur fyrir, fer til kynningar og afgreiðslu á viðeigandi stöðum. Júní: Uppfærsla á Samgöngusáttmála lögð endanlega fyrir. Lesa má umrætt minnisblað hér.
Samgöngur Borgarlína Reykjavík Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Mosfellsbær Vegagerð Hafnarfjörður Garðabær Seltjarnarnes Kópavogur Tengdar fréttir Leggja til að virkja endurskoðunarákvæði samgöngusáttmálans Tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um að endurskoðunarákvæði samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins verði virkjað verður lögð fyrir fund borgarstjórnar á morgun, 21. febrúar. 20. febrúar 2023 16:09 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Fleiri fréttir Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Sjá meira
Leggja til að virkja endurskoðunarákvæði samgöngusáttmálans Tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um að endurskoðunarákvæði samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins verði virkjað verður lögð fyrir fund borgarstjórnar á morgun, 21. febrúar. 20. febrúar 2023 16:09