Ingibjörg Sólrún segist spennt fyrir nýju starfi hjá SÞ í Írak Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 15. janúar 2021 21:00 Ingibjörg Sólrún Gísladóttir mun hefja störf, sem staðgengill fulltrúa aðalritara Sameinuðu þjóðanna í Írak, í mars. Vísir/Vilhelm Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi ráðherra og Alþingismaður, hefur verið skipuð sem staðgengill fulltrúa António Guterres, aðalritara Sameinuðu þjóðanna, í Írak. Hún segist spennt fyrir starfinu og verkefnunum sem því fylgja. „
Ég er mjög spennt fyrir starfinu. Ég var nú ekkert að hugsa mér til hreyfings og hélt ég væri bara komin heim. Svo bauðst mér þetta og mér finnst þetta spennandi, þetta er á mínu áhugasviði og þar af leiðandi ákvað ég að slá til,“ segir Ingibjörg Sólrún í samtali við Vísi. Starfið felst einna helst í því að aðstoða stjórnvöld við undirbúning og framkvæmd kosninga og eftirlit með mannréttindamálum, sem er sama svið og Ingibjörg starfaði við hjá ÖSE sem yfirmaður Lýðræðis- og mannréttindastofnunar hennar. „Þetta er mjög skylt því starfi að ýmsu leyti sem að ég gegndi hjá ÖSE. Ég var sem yfirmaður lýðræðis- og mannréttindastofnunarinnar hjá ÖSE yfir kosningadeildinni og hafði með lýðræðismálin að gera og það er á því sviði sem þetta starf er. Ég verð aðallega með pólitísku málin og kosningar, þannig að þetta er skylt því sem ég hef verið að gera.,“ segir Ingibjörg. „En þetta er auðvitað alltaf til aðstoðar þeim, þau ráða för. Starfið felst líka í mannréttindamálum, þau koma þarna líka inn.“ „Eins lengi og maður getur lært eitthvað er það gaman“ Ingibjörg verður búsett í Bagdad, höfuðborg Írak, og flytur hún þangað í mars þegar hún hefur störf. Hún segist undirbúin fyrir það að flytja til Írak, en hún starfaði áður í Afganistan hjá UN Women. „Ég hef verið í Afganistan, ég veit hvernig það er að vera í landi þar sem átök hafa átt sér stað. Ég geri ráð fyrir, og mér sýnist Írak vera betra en Afganistan. Ég veit alveg hvað ég er að fara út í,“ segir Ingibjörg. „Mér finnst þetta mjög spennandi heimshluti. Ég hef alltaf haft mjög mikinn áhuga á Mið-Austurlöndum. Mér finnst heimshlutinn spennandi, mér finnst verkefnin spennandi og ég er viss um að þetta er tækifæri til þess að læra margt nýtt. Eins lengi og maður getur lært eitthvað er það gaman,“ segir Ingibjörg Sólrún.
Sameinuðu þjóðirnar Íslendingar erlendis Tengdar fréttir „Þau vita það fullvel að það verður ekki auðvelt að finna eftirmann“ Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fráfarandi forstjóri Lýðræðis- og mannréttindastofnunar ÖSE, segir að það felist í því ákveðin yfirlýsing að hafna áframhaldandi setu hennar í starfi. Lýðræðis- og mannréttindahluta ÖSE sé sett í ákveðið uppnám. 14. júlí 2020 13:27 Ingibjörg Sólrún verður ekki forstjóri Lýðræðis- og mannréttindastofnunarinnar áfram Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, mun láta af störfum sem forstjóri Lýðræðis- og mannréttindastofnunar ÖSE en hún hefur gengt starfinu undanfarin þrjú ár. 13. júlí 2020 18:02 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Innlent Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Innlent Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Innlent „Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Innlent Hátíðardagskrá víða um land á verkalýðsdaginn Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Innlent Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Innlent Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Innlent Fleiri fréttir „Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Hátíðardagskrá víða um land á verkalýðsdaginn Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Fallið frá ráðningarferli og Hermann fylgir Sigurði Inga Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Gamla stjarnan þótti ekki henta nútímakröfum Ekkert eftirlit með veðmálasíðum, landris við Svartsengi og milljónasektir fyrir eldislax Facebook-hakkið hafi ekki áhrif á rannsóknina Hver er Kári Hansen? Nokkurra bíla árekstur á Miklubraut Hafa áhyggjur af fylgistapi flokksins Umferðartafir vegna elds í tengivagni Heimta hundrað milljóna króna tryggingu Engin merki um að kvikuhlaup sé hafið eða að hefjast Gæsluvarðhald beggja framlengt Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Leggja til kröfu um sólarsellur á þaki nýbygginga Úrskurðaður í síbrotagæslu eftir ofsaaksturinn Svona var Pallborðið með Helgu Þóris og Eiríki Inga Birna sett sýslumaður á Vesturlandi Segir ekkert „dramatískt“ að frétta af eldgosinu Umdeildu frumvarpi um lagareldi breytt Matvælaráðherra segir fiskeldisfrumvarp mikla bragarbót fyrir umhverfið Quang Le hakkaður á Facebook Sjá meira
„Þau vita það fullvel að það verður ekki auðvelt að finna eftirmann“ Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fráfarandi forstjóri Lýðræðis- og mannréttindastofnunar ÖSE, segir að það felist í því ákveðin yfirlýsing að hafna áframhaldandi setu hennar í starfi. Lýðræðis- og mannréttindahluta ÖSE sé sett í ákveðið uppnám. 14. júlí 2020 13:27
Ingibjörg Sólrún verður ekki forstjóri Lýðræðis- og mannréttindastofnunarinnar áfram Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, mun láta af störfum sem forstjóri Lýðræðis- og mannréttindastofnunar ÖSE en hún hefur gengt starfinu undanfarin þrjú ár. 13. júlí 2020 18:02