Spyrja hvort móðurfélag Norðuráls reyni að þvinga niður raforkuverð Kjartan Kjartansson skrifar 21. október 2020 18:26 Norðurál rekur álver á Grundartanga. Vísir
Landsvirkjun hafnar ásökunum Norðuráls um að fyrirtækið hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína á skammtímamarkaði með raforku. Í yfirlýsingu Landsvirkjunar er krafa Norðuráls sett í samhengi við að móðurfélag þess virðist reyna að þvinga niður raforkuverð á starfssvæðum sínum. Norðurál sendi Samkeppniseftirlitinu erindi þar sem fyrirtækið óskaði íhlutunar vegna þess sem telur misnotkun Landsvirkjunar á markaðsráðandi stöðu þegar það falaðist eftir að kaupa raforku á skammtímamarkaði í sumar. Landsvirkjun hafi sett upp yfirverð á orkunni. Í yfirlýsingu sem Landsvirkjun sendi frá sér síðdegis er þeim ásökunum vísað á bug og fullyrt að fyrirtækið hafi farið að samkeppnislögum, þar á meðal ákvæðum sem banna sölu á orku undir kostnaðarverði sem hafi neikvæð áhrif á samkeppni. Gerir Landsvirkjun einnig athugasemdir við rökstuðning Norðuráls um að fyrirtækið hafi ekki haft nægjanlega orku í gegnum langtímasamninga til þess að halda uppi fullri framleiðslu í álverinu á Grundartanga í allnokkur ár. Landsvirkjun bendir á að hún sjái Norðuráli aðeins fyrir um 35% af orkuþörf álversins. Verð Landsvirkjunar á skammtímaorku hafi verið við kostnaðarverð undanfarin misseri og því hafi ekki verið borð fyrir báru að selja það lægra verði. „Landsvirkjun ber að sjálfsögðu ekki ábyrgð á skerðingum annarra raforkuframleiðanda og er ekki eini raforkubirginn sem álver og aðrir viðskiptavinir geta leitað til vegna kaupa á skammtímaorku,“ segir í yfirlýsingunni. Orkufyrirtækið setur erindi Norðuráls í samhengi við fréttir af því að Century Aluminium, móðurfélag þess, ætli að loka álveri sínu í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum í desember fáið það ekki lægra raforkuverð. „Vekur það óneitanlega spurningu um hvort erindið sé liður í áætlun móðurfélagsins um að þvinga niður raforkuverð á starfssvæðum sínum,“ segir Landsvirkjun í yfirlýsingunni.
Landsvirkjun Orkumál Stóriðja Samkeppnismál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Ópíóíða, róandi- og svefnlyf: „Það geta allir orðið háðir þessum lyfjum ómeðvitað“ Atvinnulíf Kaupa Íslensk verðbréf Viðskipti innlent Ráðin aðstoðarforstjóri og fjármálastjóri Sidekick Viðskipti innlent Rekstrarafkoma Sýnar ekki ásættanleg Viðskipti innlent Davíð Tómas ráðinn framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Einar hættir með Grillbúðina Viðskipti innlent „Fólk heldur kannski að það sé saklaust að kaupa eina falsaða tösku“ Atvinnulíf Krökkunum finnst hálf hallærislegt að mamman kunni Friends þættina utan að Atvinnulíf Hætta skerðingum til stórnotenda Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kynning á yfirlýsingu peningastefnunefndar Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Ráðin aðstoðarforstjóri og fjármálastjóri Sidekick Kaupa Íslensk verðbréf Ópíóíða, róandi- og svefnlyf: „Það geta allir orðið háðir þessum lyfjum ómeðvitað“ Rekstrarafkoma Sýnar ekki ásættanleg Einar hættir með Grillbúðina Hætta skerðingum til stórnotenda Davíð Tómas ráðinn framkvæmdastjóri Farþegum fjölgaði og sætanýting um 85 prósent Ráðin forstöðumaður hjá OK Snýr aftur til Snjallgagna Ballið búið fyrir fullt og allt á B5 Yfir milljón farþegar fyrstu fjóra mánuði ársins Háttsemi dómara ekki saknæm og Isavia fær því enga milljarða Mímir nýr forstöðumaður hjá Högum „Fólk heldur kannski að það sé saklaust að kaupa eina falsaða tösku“ Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Krökkunum finnst hálf hallærislegt að mamman kunni Friends þættina utan að Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Spá því að stýrivextir haldist óbreyttir Bein útsending: Ársfundur SFS – Best í heimi? Þarf að greiða kortareikninginn og meira til í málskostnað Neytendur kunna að meta Landlaxinn og Landbleikjuna Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Tekjur Apple drógust saman enn eina ferðina Grindvíkingar borgi allt að þriðjungi hærri leigu en aðrir Guðný og Sigurður Helgi til SI Dýrmætustu og sjaldgæfustu Mustang bílar landsins á afmælissýningu Mustang Sjá meira