Baskarnir, Januzaj og Silva í draumaheimi Sindri Sverrisson skrifar 29. nóvember 2020 09:46 Real Sociedad hefur fagnað fjölda marka og sigra það sem af er leiktíð. Getty/Mateo Villalba Byrjun Real Sociedad á leiktíðinni í spænska boltanum hefur verið draumi líkust og enn betri en þegar Xabi Alonso fór með liðinu í titilbaráttu fyrir 17 árum.
Fáir bjuggust sjálfsagt við því að eftir tíu umferðir yrði Real Sociedad á toppi spænsku 1. deildarinnar í fótbolta. Sú var þó raunin. Á meðan að gengi meistara Real Madrid hefur verið misjafnt, og Barcelona virst nánast í molum, hefur hinu 111 ára gamla félagi úr Baskahéraði, Real Sociedad, gengið líkt og í draumi. Sociedad tekur á móti Villarreal í kvöld og getur unnið sinn sjöunda sigur í röð í deildinni. Liðið er með 23 stig og hefur ekki byrjað svona vel síðan að það varð síðast Spánarmeistari, tímabilið 1981-82. Sociedad varð í 6. sæti á siðustu leiktíð. Félagið hafði hægt um sig á leikmannamarkaðnum í haust, og missti Martin Ödegaard aftur úr láni til Real Madrid, en tókst þó að landa snillingnum David Silva sem kom frítt frá Manchester City við litla kátínu Lazio-manna. Sociedad fylgdi þeirri stefnu lengst af í sinni sögu, að nota aðeins leikmenn frá Baskahéraði. Á síðustu áratugum hefur félagið vikið frá þeirri stefnu, eins og þegar það fékk Alfreð Finnbogason árið 2014, en kjarninn í liðinu er eftir sem áður Baskar. Með fleiri uppalda í hópnum en öll hin Þjálfarinn Imanol Alguacil er raunar með 16 leikmenn í sínum aðalliðshópi sem komu í gegnum unglingaakademíu félagsins, fleiri en nokkurt annað félag í spænsku 1. deildinni. Þar á meðal eru spænski landsliðsmaðurinn Mikel Oyarzabal sem kominn er með sex mörk á tímabilinu. Imanol þjálfaði í akademíunni áður en hann tók við aðalliðinu árið 2018. Í dag eru fimm útlendingar í leikmannahópnum hjá Imanol. Þeirra á meðal eru Belginn Adnan Januzaj, sem náði ekki að slá í gegn hjá Manchester United, og sænska ungstirnið Alexander Isak sem kom frá Dortmund í fyrra. Januzaj er á sinni fjórðu leiktíð með Sociedad en þeir hafa skorað tvö mörk hvor á leiktíðinni. Sociedad hefur ekki barist um spænska meistaratitilinn af alvöru síðan árið 2003, með ungan Xabi Alonso þá innanborðs, þegar liðið endaði aðeins tveimur stigum á eftir Real Madrid. Hve lengi liðið endist í titilbaráttunni í vetur verður hins vegar að koma í ljós.
Spænski boltinn Mest lesið Starfsmaður Fylkis dæmdur í tveggja leikja bann Íslenski boltinn Ótrúlegur viðsnúningur Lyon Fótbolti „Menn eru gríðarlega súrir“ Íslenski boltinn Uppgjörið, viðtöl og myndir: Breiðablik - Stjarnan 2-1 | Blikar minnkuðu forskot Víkinga Íslenski boltinn Jökull: Skrýtið að sjá Blika hægja á leiknum á heimavelli Sport Uppgjörið og viðtöl: Fram 1-1 ÍA | Dýrkeypt klikk í lokin Íslenski boltinn Uppgjör: HK - Valur 1-2 | Þriðji sigur Vals í röð Íslenski boltinn „Þurftum bara að skerpa á nokkrum hlutum“ Íslenski boltinn Jamil mun stýra Val í Subway-deild kvenna á næstu leiktíð Körfubolti „Ágæt regla fyrir varnarmenn að standa í lappirnar“ Sport Fleiri fréttir Ótrúlegur viðsnúningur Lyon Starfsmaður Fylkis dæmdur í tveggja leikja bann „Menn eru gríðarlega súrir“ Uppgjörið, viðtöl og myndir: Breiðablik - Stjarnan 2-1 | Blikar minnkuðu forskot Víkinga „Þurftum bara að skerpa á nokkrum hlutum“ Uppgjörið og viðtöl: Fram 1-1 ÍA | Dýrkeypt klikk í lokin Uppgjör: HK - Valur 1-2 | Þriðji sigur Vals í röð Tvenna Orra Steins dugði ekki og titilvonir FCK úr sögunni Pochettino farinn frá Chelsea Býst við að Sveindís Jane sé klár fyrir leikina mikilvægu Benítez ráðleggur Slot fyrir komuna til Liverpool Fyrrum besta knattspyrnukona heims framlengir við Barcelona Mo Salah ætlar að vinna titla með Liverpool á næstu leiktíð Valsmenn hafa unnið alla deildarleiki sína við HK frá hruni Ráðherrar reiðir út í leikmann í frönsku deildinni Sara Björk ekki áfram hjá Juventus Rashford líka skilinn eftir heima Tveir leikir á Akureyri og bikarmeistararnir lentu á móti Fylki Sagður vera búinn að henda Henderson út úr enska landsliðinu Löðrungaði son sinn fyrir að gera lítið úr Juventus Toni Kroos hættir eftir EM í sumar Eigendur Inter í fjárhagskröggum og við það að missa félagið frá sér Sjáðu umdeilda vítið sem KR fékk og öll mörkin úr Bestu í gær Kaupstefna Brighton ástæðan fyrir brotthvarfi De Zerbi Völdu Albert í lið ársins Tuchel daðrar við Man United og Chelsea Juventus skoraði þrjú á átta mínútum og bjargaði stigi Tel að ég geti hjálpað liðinu að ná í fleiri sigra Uppgjör og viðtöl: KA-Fylkir 4-2 | Fyrsti sigur Akureyringa í hús „Okkar langar rosalega að klífa upp töfluna“ Sjá meira
Uppgjörið, viðtöl og myndir: Breiðablik - Stjarnan 2-1 | Blikar minnkuðu forskot Víkinga Íslenski boltinn
Uppgjörið, viðtöl og myndir: Breiðablik - Stjarnan 2-1 | Blikar minnkuðu forskot Víkinga Íslenski boltinn