Helga hellir sér í forsetaslaginn Árni Sæberg skrifar 27. mars 2024 12:05 Helga Þórisdóttir býður fram krafta sína til forseta Íslands. Vísir/Einar Helga Þórisdóttir forstjóri Persónuverndar ætlar að gefa kost á sér til embættis forseta Íslands. Helga upplýsti um þetta á blaðamannafundi á heimili sínu í Fossvoginum í hádeginu.
Í framboðsræðu sinni fór Helga ítarlega yfir starfsferill sinn, sem hún sagði hafa snúið alfarið að þjónustu við almannahagsmuni. Hún hafi starfað hjá embætti ríkissaksóknara, á nefndasviði Alþingis, hjá EFTA í Brussel, menntamálaráðuneytinu og Lyfjastofnun. Síðastliðin átta ár hafi hún verið forstjóri Persónuverndar. „Með alla mína dýrmætu reynslu og þekkingu býð ég mig nú fram til embættis forseta Íslands.“ Hún segir að hún brenni fyrir hagsmunum íslenskrar þjóðar og þess vegna bjóði hún fram reynslu sína, þekkingu og einlægni til þess að gegna mikilvægu embætti forseta Íslands. „Embætti forseta Íslands er að mínu mati eitt af virðingarmestu embættum landsins. Í embættinu þarf að vera einstaklingur sem ber virðingu fyrir lýðræðinu og fyrir grunngildum íslenskrar þjóðar, eins og þau eru lögfest í okkar stjórnarskrá. Það þarf að vera einstaklingur sem tryggir að virðing sé borin fyrir öllum í lýðræðissamfélagi. Einstaklingur sem tryggir að ríkið, á hverjum tíma, grafi ekki undan okkar helstu gildum.“ Blaðamannafund Helgu má sjá í heild sinni hér að neðan: Stígur til hliðar Í tilkynningu á vef Persónuverndar segir að Helga hafi óskað eftir leyfi frá störfum sem forstjóri Persónuverndar frá og með deginum í dag, 27. mars 2024. Staðgengill forstjóra í hennar fjarveru verði Helga Sigríður Þórhallsdóttir, lögfræðingur, sem hafi starfað hjá stofnuninni síðan 2015, nú síðast sem sviðsstjóri alþjóða- og fræðslusviðs. Helga verður í leyfi til 1. júní, þegar kosið verður til forseta. Fréttin hefur verið uppfærð.
Forsetakosningar 2024 Forseti Íslands Persónuvernd Tengdar fréttir Forstjóri Persónuverndar íhugar alvarlega að gefa kost á sér Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar og formaður stjórnar Félags forstöðumanna ríkisstofnana, segir meiri líkur en minni á að hún bjóði sig fram til embættis forseta Íslands. 13. mars 2024 14:56 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Innlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Fylgjast grannt með gangi mála Innlent Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Innlent Efstar með ómarktækan mun á milli sín Innlent „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Innlent Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Innlent Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Innlent Fleiri fréttir Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Fylgjast grannt með gangi mála Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Fjögurra bíla árekstur efst í Ártúnsbrekku Björn Leví segir Harald hafa fundið skálkaskjól í orðum Bjarna Flæði innan við einn rúmmetri á sekúndu „Ég hafna því að við séum ekki að sinna velferð dýra á þessum bæ” Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg „Ríkisfjármálin eru í ruglinu“ Atvinnubílstjórar sýni minnstu tillitssemina Orkuveitan skilar Elliðaárdalnum Stuðningsmenn Katrínar áhugasamari en aðrir Lengri lokun þar sem kerfið hefur „hangið á bláþræði“ Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til „Allir að bíða eftir þessum atburði sem ekki skeður“ Nýborin lömb finnist dauð og deyjandi úr vosbúð „Hef haft áhyggjur af fangelsismálum frá því ég kom í embætti“ „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Kannabis en ekki kjólar í kassanum Halla Hrund áfram efst Fjöldaúrsagnir kvenna úr mannkyninu Leki kom að bát út af Barða Óbreyttir stýrivextir, fangamál og dræmt Eurovision áhorf Sjá meira
Forstjóri Persónuverndar íhugar alvarlega að gefa kost á sér Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar og formaður stjórnar Félags forstöðumanna ríkisstofnana, segir meiri líkur en minni á að hún bjóði sig fram til embættis forseta Íslands. 13. mars 2024 14:56