„Með samkennd og samúð farnast okkur ætíð betur en ella“ Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 10. júlí 2020 19:18 Bjarni Benediktsson ber blómsveig að minnisvarða um þáverandi forsætisráðherra og nafna, eiginkonu hans og barnabarn. Vísir/Berghildur „
Slíkur atburður er meiri en svo að orðum verði yfir komið.“ Voru orð Kristjáns Eldjárns þáverandi forseta Ísland í ávarpi í Ríkisútvarpinu þann 10. júlí árið 1970 og lýstu þeirri þjóðarsorg sem missirinn var. Forsætisráðherrahjónin höfðu farið 9. júlí árið 1970 í ráðherrabústaðinn á Þingvöllum til að dvelja þar yfir nótt ásamt dóttursyni sínum. Hollenskir ferðamenn urðu eldsins varir um klukkan hálf tvö að nóttu þann 10. júlí 1970. „Gengu þeir umhverfis húsið en í því lyftist húsið eins og að um sprengingu hefði verið að ræða og mikið eldhaf gaus upp.“ Sagði Jóhannes Arason fréttamaður í kvöldfréttum á Rúv sama dag þegar sagt var frá brunanum. Minningarathöfn var haldin á Þingvöllum í dag þar sem Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og nafni þáverandi forsætisráðherra bar blómsveig að minnisvarða um atburðinn og flutti ávarp ásamt Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra. „Hér er alltaf þessi angurværð sem hvílir yfir þessum stað og minnir okkur á þá sem voru kallaðir héðan of snemma,“ sagði Katrín Jakobsdóttir á Þingvöllum í dag. Átti að vera skírður þennan dag „Bjarni Benediktsson var úr mínum nánasta frændgarði og þetta var örlagadagur fyrir mig því foreldrar mínir höfðu þennan dag ákveðið að skíra mig Ingimund en þurftu að slá öllu á frest og síðan hef ég borið þetta nafn og var skírður því nokkrum vikum síðar,“ segir Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra sem var sex mánaða þegar frændi hans lést. Halldór Blöndal fyrrverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins var 32 ára þegar eldsvoðinn varð. Þetta er einhver ógvænlegasti atburður sem ég hef lifað og maður fann það hvarvetna þar sem maður kom fólk var almennt slegið og sorgmætt, “ segir Halldór Blöndal. „Með samkennd og samúð farnast okkur ætíð betur en ella“ „Þetta skyndilega og sviplega brotthvarf Bjarna Benediktssonar úr heimi stjórnmálanna setti sinn svip á þróun mála þar á landsvísu og innan hans stjórnmálaflokks. Í stað þess að festa vissa framtíðarsýn í sessi tók við tímabil upplausnar og átaka innan Sjálfstæðisflokksins. Jóhann Hafstein varð forsætisráðherra og gegndi því embætti með þeirri samvisku sem honum var í blóð borin en ég ljóstra þó ekki upp neinu leyndarmáli þó ég segi að hugur hans stóð ekki til þess. Hér stöndum við nú hálfri öld síðar og minnumst þeirra sem fóru alltof snemma og horfum björtum augum framávið þrátt fyrir allar okkar áskoranir og þær áskoranir sem halda áfram að mæta okkur og finnum að með samkennd og samúð farnast okkur ætíð betur en ella,“ segir Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands. Þennan sama dag árið 2009 brann Hótel Valhöll til kaldra kola.
Alþingi Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Sjálfstæðisflokkurinn Tengdar fréttir Bruninn á Þingvöllum reiðarslag fyrir þjóðina Hálf öld frá hinum skelfilega bruna á Þingvöllum þegar eldur braust út í ráðherrabústaðnum þar. 10. júlí 2020 15:02 Minningarathöfn um forsætisráðherrahjón og barnabarn þeirra Minningarathöfn verður haldin á Þingvöllum í dag til minnast þess að hálf öld er liðin frá því að Bjarni Benediktsson forsætisráðherra Íslands, Sigríður Björnsdóttir eiginkona hans og fjögurra ára dóttursonur þeirra fórust í eldsvoða í ráðherrabústaðnum. 10. júlí 2020 14:30 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent Svipar til gamalla óupplýstra rána Innlent Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert Innlent Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Innlent Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Innlent Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Innlent „Trúði því ekki að þetta væri ég“ Innlent Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Innlent Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Innlent Fleiri fréttir „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Eldur í Hafnarfirði Haraldur mátti ekki hækka launin en Sigríður ekki heldur lækka þau Læknafélagið mótfallið lögleiðingu dánaraðastoðar „Trúði því ekki að þetta væri ég“ Ekki viss hvort nokkru þurfi að breyta eftir tug milljóna króna þjófnað 546 Grindvíkingar vilja selja Þórkötlu húsið sitt Steinunn Ólína hálfu skrefi frá því að bjóða sig fram Baldur mælist með langmest fylgi Sjá meira
Bruninn á Þingvöllum reiðarslag fyrir þjóðina Hálf öld frá hinum skelfilega bruna á Þingvöllum þegar eldur braust út í ráðherrabústaðnum þar. 10. júlí 2020 15:02
Minningarathöfn um forsætisráðherrahjón og barnabarn þeirra Minningarathöfn verður haldin á Þingvöllum í dag til minnast þess að hálf öld er liðin frá því að Bjarni Benediktsson forsætisráðherra Íslands, Sigríður Björnsdóttir eiginkona hans og fjögurra ára dóttursonur þeirra fórust í eldsvoða í ráðherrabústaðnum. 10. júlí 2020 14:30