Afstaða, félag fanga á Íslandi, fagnar því að dómsmálaráðherra hafi brugðist við ástandi á biðlista með því að náða þá sem beðið hafa lengi eftir afplánun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum í dag. Í sömu tilkynningu gagnrýna samtökin þó mismunun gagnvart brotaflokkum þegar kemur að náðun.
Starfshópur á vegum dómsmálaráðherra sem skipaður var til að gera tillögur að aðgerðum til að stytta boðunarlista til afplánunar refsinga lagði til skilorðsbundna náðun fyrir þá sem dæmdir hafa verið fyrir minni háttar brot og verið á boðunarlista í þrjú ár eða meira.
Á ríksstjórnarfundi á þriðjudaginn afgreiddi ríkisstjórnin níu náðunartillögur. Tilkynning Afstöðu var send út í kjölfarið.
„Ráðherra og umræddur starfshópur ætla þannig að fella eigin dóm um það hvaða afbrot eða afbrotamenn eiga möguleika á náðun og hverjir ekki. Matið verður þar með huglægt og líklega ómálefnalegt,“ segir í tilkynningunni.
Afstaða bendir á í tilkynningunni að hafi einstaklingur beðið eftir afplánun í þrjú ár megi áætla að ekki hafi verið knýjandi þörf fyrir að fangelsa einstaklinginn strax. Þá sé þriggja ára bið fangelsisvist í sjálfu sér enda geti einstaklingur á biðlista ekki undirbúið framtíð sína eða skuldbundið sig félagslega.
„Brotaflokkur hefur ekkert með það að gera. Færa má rök fyrir því að minni hætta sé á því að veita einstaklingum með alvarlegra brot náðun en einstaklingum í örðum brotaflokkum,“ segir í tilkynningunni.