Derby County er komið í greiðslustöðvun og fengið tólf stiga refsingu vegna þess. Liðið er komið á botn næst efstu deildar.
Derby var með 10 stig og hafði byrjað tímabilið miklu betur en vonir stóðu til enda peninga vandræði einkennt rekstur félagsins.
Mel Morris eigandi félagsins hefur hætt að setja peninga í félagið og reynt að selja Derby en án árangurs.
Ljóst er að stigin sem félagið fær í mínus gætu kostað liðið sæti í deildinni, Derby er nú á botni deildarinnar með -2 stig.
Leitað er að nýjum eiganda sem gæti komið félaginu til bjargar en óvíst er hvort það takist, mögulegt gjaldþrot er því í kortunum. Wayne Rooney er knattspyrnustjóri félagsins.