Elvar drjúgur í góðum sigri

Elvar Már Friðriksson í leik með íslenska landsliðinu.
Elvar Már Friðriksson í leik með íslenska landsliðinu. Ljósmynd/FIBA

Landsliðsmaðurinn Elvar Már Friðriksson átti góðan leik fyrir Antwerp Giants þegar liðið vann sterkan 81:72 sigur gegn Limburg í belgísku 1. deildinni í körfuknattleik í kvöld.

Elvar Már skoraði 9 stig, gaf 6 stoðsendingar og tók 4 fráköst á tæpri 31 mínútu í kvöld.

Stigahæstir í leiknum voru þrír samherjar hans, allir með 12 stig.

Um var að ræða fyrstu umferð belgísku deildarinnar og fer nýtt lið Elvars Más, sem var valinn leikmaður ársins í litháísku deildinni á síðasta tímabili, því vel af stað á nýju tímabili.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert