Hjálmar Jónsson verður áfram formaður Blaðamannafélags Íslands, en hann verður sjálfkjörinn á aðalfundi félagsins 29. október þar sem ekkert mótframboð barst.
Fram kemur á vef BÍ að frestur til að bjóða sig fram til formanns rann út á miðnætti, en framboð þarf að berast skrifstofu BÍ ekki síðar en tveimur vikum fyrir boðaðan aðalfund.
„Aðeins eitt framboð barst, en það er framboð Hjálmars Jónssonar sitjandi formanns. Hann verður því sjálfkjörinn á aðalfundinum,“ segir í tilkynninguni.
Aðalfundur Blaðamannafélagsins árið 2020 verður haldinn fimmtudaginn 29. október.