Ingibjörg tilnefnd sem leikmaður ársins í Noregi Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 3. desember 2020 11:31 Ingibjörg hefur verið frábær á sínu fyrsta tímabili í Noregi. Annika Byrde/NTB scanpix Ingibjörg Sigurðardóttir, miðvörður íslenska landsliðsins og Vålerenga, hefur verið tilnefnd sem leikmaður ársins í Noregi.
Hin 23 ára gamla Ingibjörg hefur komið eins og stormsveipur inn í norska boltann en hún samdi við Vålerenga fyrir yfirstandandi tímabil. Hún hefur átt frábært tímabil með liðinu sem trónir á toppi deildarinnar þegar lokaumferð deildarinnar er eftir. Vålerenga mætir Arna-Bjørnar í lokaleik norsku úrvalsdeildarinnar og sigur þar tryggir liðinu norska meistaratitilinn nema Rosenborg vinni stórisgur á Klepp en bæði lið eru með 35 stig eftir 17 leiki. Vålerenga er með fjögur mörk á Rosenborg þegar kemur að markatölu og því ætti sigur einfaldlega að duga liðinu til sigurs í deildinni. Fjögurra manan dómnefnd hefur nú tilnefnt þrjá bestu leikmenn deildarinnar. Ásamt Ingibjörgu eru þær Julie Blakstad og Cesilie Andreassen frá Rosenborg tilnefndar. „Vålerenga er að eiga sitt besta tímabil frá upphafi og hefur varnarleikur liðsins verið þeirra helsti styrkur. Liðið hefur fengið á sig fæst mörk í Toppserien [norsku úrvalsdeilinni] og er það Íslendingurinn sem stýrir varnarleiknum eins og herforingi. Hún er augljós kostur í byrjunarlið Jack Majgaard Jensen, þjálfara liðsins, og er nánast ómögulegt að komast fram hjá henni. Þá hefur hún þess að auki skorað sex mörk fyrir félagið,“ segir í umsögn Ingibjargar. Dattera til Sigurd er nominert som årets spiller!https://t.co/9J7BvX2LJb— Vålerenga Fotball Kvinner (@VIFDamer) December 3, 2020 Vålerenga hefur aðeins fengið á sig 14 mörk í leikjunum 17 til þessa. Á Ingibjörg stóran þátt í því. Ingibjörg skorar reglulega og þá oftast mikilvæg mörk. Þar á meðal sigurmark í uppbótartíma gegn Røa, mark sem gæti reynst gulls ígildi þegar stigin verða talin að móti loknu. Einnig skoraði Ingibjörg í 2-1 sigri á Avaldsnes fyrr á þessari leiktíð. Gæti það farið svo að Ingibjörg verði tvöfaldur meistari á sínu fyrsta ári í Noregi en ásamt því að vera einum leik frá norska meistaratitlinum þá er félagið einnig aðeins einum leik frá sigri í bikarkeppninni. Þar bíður Lillestrøm en úrslitaleikurinn fer fram 13. desember. Það verður nóg að gera hjá Ingibjörgu og stöllum hennar í næstu viku en liðið mætir einnig Bröndby frá Danmörku í 32-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Fara þeir leikir fram 10. og 16. desember.
Fótbolti Norski boltinn Íslendingar erlendis Mest lesið Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Fótbolti McIlroy í baráttunni þrátt fyrir yfirvonandi skilnað Golf Uppgjör: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Körfubolti „Ég táraðist smá“ Sport „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ Körfubolti Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Handbolti „Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“ Körfubolti Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Íslenski boltinn Börsungar styrktu stöðu sína í öðru sæti Fótbolti Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Enski boltinn Fleiri fréttir Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Börsungar styrktu stöðu sína í öðru sæti Bikarmeistarar Víkings í næstu umferð ásamt Keflavík og Fylkir Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Sverrir Ingi á toppinn í Danmörku Kolbeinn lagði upp jöfnunarmark Gautaborgar Viðar Ari skoraði og lagði upp í ótrúlegum sigri Stefán Teitur skoraði þegar Silkeborg lagði AGF annað sinn UEFA setur pressu á City Football Group Fyrirliði 21 árs landsliðs Svía skiptir um landslið Tímabilið búið hjá Ederson og City treystir á Ortega í síðustu tveimur leikjunum Margrét Lára: Mér finnst hún hafa verið stórkostleg Chelsea sló spjaldametið í deildinni Hjólaði frá Mongólíu og grét af gleði þegar hann hitti hetjuna Þriðji markahæsti landsliðsmaðurinn leggur skóna á hilluna Umboðsmaður Olise dæmdur í sex mánaða bann Rashford reiður og reifst við áhorfanda fyrir leik Fabiana brýtur blað í sögunni áður en Jói Kalli tekur við Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Allegri afklæddist á hliðarlínunni „Sá að þeim leið aldrei illa“ Mætti á þing FIFA úr fangaklefanum Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ „Þetta var ótrúlega erfitt“ Vlahovic tryggði Juventus bikarmeistaratitilinn United lyfti sér upp að hlið Newcastle Evrópudraumurinn lifir góðu lífi eftir fjórða sigurinn í röð KA sneri taflinu við í seinni hálfleik Sjá meira