Tony Knapp er látinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. mars 2023 13:01 Tony Knapp hleypur hér inn á Villa Park fyrir leik með Southampton á móti Manchester United í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar. Getty/ V. Fowler Knattspyrnuþjálfarinn Tony Knapp er látinn en hann varð 86 ára gamall. Íslenska karlalandsliðið í fótbolta komst á kortið undir hans stjórn á áttunda áratugnum og vann sína fyrstu sigra í undankeppnum stórmóta.
Knapp er fyrrum þjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta en hann þjálfaði liðið á tveimur mismunandi tímum. Knapp tók fyrst við íslenska liðinu árið 1974 og þjálfaði það til 1977. Hann þjálfaði íslenska landsliðið einnig frá 1984 til 1985. Viking-legenden Tony Knapp er død https://t.co/CVExAinm1q— VG Sporten (@vgsporten) March 22, 2023 Undir stjórn Knapp náði íslenska landsliðið einum merkasta sigri í sögu þessa þegar liðið vann 2-1 sigur á Austur-Þýskalandi á Laugardalsvellinum 5. júní 1975. Leikurinn var í undankeppni EM 1976 en íslenska liðið hafði náð jafntefli í útileiknum í október árið áður. Þessi sigur í Laugardalnum fyrir tæpum 48 árum var fyrsti sigur íslenska karlalandsliðsins í undankeppni EM eða HM. Knapp skrifaði líka sögu íslenska landsliðsins í HM því undir hans stjórn vann Ísland sinn fyrsta sigur í undankeppni HM þegar liðið vann 1-0 sigur á Norður-Írlandi 11. júní 1977. Ísland hafði tapað fyrstu tíu leikjum sínum í undankeppni HM þegar Knapp tók við. Þegar Knapp tók aftur við landsliðinu árið 1984 þá vann liðið 1-0 sigur á Wales á Laugardalsvellinum í hans fyrsta leik með liðið. Íslenska landsliðið lék alls 33 leiki undir stjórn Knapp og vann níu þeirra. Knapp var sjálfur leikmaður með liðum eins og Leicester, Southampton og Coventry áður en hann varð þjálfari. Knapp var miðvörður og lengst spilaði hann hjá Southampton eða alls 233 leiki frá 1961 til 1967. Eftir að hann þjálfaði íslenska landsliðið í fyrra skiptið þá fór hann til Noregs og undir hans stjórn vann Viking liðið tvennuna árið 1979. Hann snéri aftur til Noregs eftir að hann hætti með íslenska landsliðið í seinna skiptið og þjálfaði síðast lið Lillesand IL frá 2007 til 2008.
Landslið karla í fótbolta Norski boltinn Mest lesið Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Enski boltinn Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Fótbolti Efsti maður heimslistans tók upphitunina í fangaklefanum Golf Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Fótbolti Snorri Barón um Söru: „Ógeð sem enginn á að þurfa að ganga í gegnum“ Sport Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Fótbolti Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Fótbolti Fleiri fréttir Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Southampton leikur um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni Jón Dagur kom inn af bekknum og bjargaði stigi Van Dijk með þrennu og Diljá tvennu í stórsigri Leuven Kristín Dís lék allan leikinn er Brøndby komst í úrslit Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Infantino segir samtökunum að hætta „tilgangslausu þrasi“ um leikjaálag Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn „Það eru alltaf einhverjar leiðir sem opnast í pressu“ Nýliðinn í íslenska landsliðinu er markahæst í dönsku úrvalsdeildinni Þorsteinn valdi þrjá nýliða fyrir mikilvæga leiki Svona var blaðamannafundur Þorsteins fyrir mikilvæga leiki Allt í skrúfunni hjá Bæjurum: Tuchel fer eftir allt saman Fjórir af tíu launahæstu íþróttamönnum heims spila í Sádi-Arabíu Fyrsta HM stelpnanna okkar verður vonandi í Brasilíu 2027 Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Börsungar styrktu stöðu sína í öðru sæti Bikarmeistarar Víkings í næstu umferð ásamt Keflavík og Fylki Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Sverrir Ingi á toppinn í Danmörku Kolbeinn lagði upp jöfnunarmark Gautaborgar Viðar Ari skoraði og lagði upp í ótrúlegum sigri Sjá meira