Áskorunin, sem Bretarnir sjá fyrir sér, eru rússnesku refsifangarnir sem hafa verið fengnir til liðs við málaliðafyrirtækið Wagner til að berjast í Úkraínu.
Auk þess að fá greitt í peningum fyrir stríðsþátttökuna fá þeir sakaruppgjöf ef þeir lifa sex mánuði af á úkraínsku vígvöllunum. Skiptir þá engu fyrir hvað þeir voru dæmdir.
„Á næstu vikum munu mörg þúsund rússneskir refsifangar, sem hafa barist fyrir Wagner, líklega verða náðaðir og látnir lausir. Þrátt fyrir að líklega hafi um helmingur fanganna fallið eða særst, þá benda upplýsingar frá Rússlandi til að Wagner standi við loforð sitt um að láta þá lausa sem lifa af,“ segir ráðuneytið.
En þetta veldur Rússum ákveðnum vandamálum.
Wagner virðist ekki lengur mega ráða fanga til starfa og þegar þeim sem hafa komist lifandi í gegnum sex mánuði verður sleppt munu „starfsmannamálin versna“ segir ráðuneytið.
En það er ekki eini vandinn. „Auk þess mun skyndilegur straumur, oft á tíðum ofbeldishneigðra manna sem hafa gengið í gegnum nýlega og hörmulega upplifun í stríðinu, væntanlega vera mikil áskorun fyrir rússneskt samfélag,“ segja Bretarnir einnig.