Undrandi á yfirlýsingu Skúla Kristín Ólafsdóttir og Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifa 21. janúar 2023 20:59 Sara Pálsdóttir, lögmaður og réttargæslumaður fjölskyldu konunnar sem lést. Vísir/Vilhelm Sara Pálsdóttir, lögmaður og réttargæslumaður fjölskyldu konu sem lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja segir að matsgerð staðfesti að konan hafi verið sett í tilefnislausa lífslokameðferð.
Ríkisútvarpið greindi fyrst frá. Skúli Tómas Gunnlaugsson sætir lögreglurannsókn vegna ásakana um að hafa sett konuna, og fimm aðra sjúklinga, í slíkar meðferðir. Hann hafnaði öllum ásökunum í vikunni og sagði matsgerðina staðfesta að sjúklingarnir hefðu látist af náttúrulegum orsökum. Réttargæslumaður aðstandenda konunnar segir sér hafa brugðið við yfirlýsingu Skúla. Í samtali við fréttastofu segir Sara Skúla í yfirlýsingu sinni draga upp ranga mynd af sér og niðurstöðum matsgerðarinnar sem liggi fyrir. „Í öðru lagi að þá get ég ekki séð betur en hann sé að saka aðstandendur, eða mína umbjóðendur um að hafa haft uppi rangar sakir gegn sér opinberlega og hann sé einhverskonar fórnarlamb þessa. Ég tel að mér sem réttargæslumanni þessara aðstandenda sé skylt að stíga fram og leiðrétta þetta. Undir öllum venjulegum kringumstæðum hefði ég aldrei tjáð mig um þetta opinberlega með þessum hætti,“ segir Sara. Þá bendir hún á að hvergi í matsgerðinni standi að sjúklingurinn hafi látist af náttúrulegum orsökum, líkt og hafi verið haldið fram. Matsgerðin staðfesti frekar þær ásakanir sem hafi komið fram og mat Landlæknis þar að auki. Matsgerðin staðfesti í raun að konan hafi verið sett á lífslokameðferð án þess að vera haldin lífshættulegum sjúkdómi. „Sú meðferð fólst í því sem kallað er lyfjafjötrar. Það er í rauninni bara ástand þar sem einstaklingur er settur á svo þung og mikil lyf að það er viðbúið að viðkomandi geti hvorki nærst né tjáð sig fyllilega og að hreyfigeta sé verulega skert eða að meðvitundarstig viðkomandi sé verulega skert,“ segir Sara. Þá staðfesti matsgerðin að hennar mati að „þessi þunga lyfjameðferð hafi verið óeðlileg, órökstudd og óforsvaranleg og hún hafi verið á þessari meðferð, nánast allan þann tíma sem hún var inni á HS sem voru 79 dagar. Þar sem ástand hennar versnaði jafnt og þétt, þar sem hún upplifði mikla þjáningu sem endaði með því að hún síðan lést eftir 79 daga af þessari meðferð,“ segir Sara. Hann talar um að þessi matsgerð að staðfesti að sjúklingarnir og þar á meðal hún, hafi látist af náttúrulegum orsökum. Þú telur það ekki segja alla söguna greinilega? „Nei og mér finnst mjög undarlegt að nota þessi orð og þessa lýsingu í því samhengi þar sem hann lýsi því að hann hafi verið hafður fyrir röngum sökum. Í rauninni sú mynd sem hann er að draga upp opinberlega af málinu og matsgerð og því sem að þar er verið staðfest tel ég vera ranga,“ segir Sara og bendir á að í matsgerð hafi komið fram að konan hafi látist úr fjölkerfabilun. Hún tekur fram að hún hafi ekki læknisfræðilega menntun og geti því ekki greint þá staðreynd frekar. „En þegar að einstaklingur sem er ekki haldinn lífshættulegum sjúkdómi er settur á svona þunga lyfjameðferð og látinn sæta henni í 79 daga, ég meina, hvernig endar það?,“ segir Sara að lokum.
Læknamistök á HSS Heilbrigðisstofnun Suðurnesja Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Hann hættir bara ekki” Innlent Hollenska söngvaranum bannað að keppa í kjölfar „hótana“ Erlent Sauð upp úr milli bónda og dýraverndunarsinna Innlent Leita enn að þeim sem réðu barnabarninu bana Innlent Mótmælendur gegn brottvísun hindruðu för lögreglubíls Innlent Hitaveitulögn sprakk í Breiðholti Innlent „Maður getur varla ímyndað sér hvað þarf að koma til“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Evrópa böðuð bleiku Erlent Aðrir frambjóðendur en efstu tveir eigi töluvert langt í land Innlent Fleiri fréttir Grunaðir um rán í miðbænum Aðrir frambjóðendur en efstu tveir eigi töluvert langt í land Sauð upp úr milli bónda og dýraverndunarsinna Kappræðurnar höfðu talsverð áhrif á kjósendur Forréttindi að fá að fylgja fólki í gegnum erfiðasta tíma lífsins Vilja breyta fyrirkomulagi við úthlutun plássa „Maður getur varla ímyndað sér hvað þarf að koma til“ Handtaka hælisleitenda og brottrekstur Hollands úr Eurovision Hitaveitulögn sprakk í Breiðholti Leita enn að þeim sem réðu barnabarninu bana Rigning í kortunum í kvöld „Hann hættir bara ekki” Hótaði lögregluþjónum og fjölskyldum þeirra Vilja að plássum í sumarfrístund sé útdeilt með sanngjarnari hætti Mótmælendur gegn brottvísun hindruðu för lögreglubíls Gætu verið einhverjar vikur í næsta gos Forsetakosningar á Eyrarbakka – munu sakna buffsins frá Guðna Var beðinn um upplýsingar um unga leikmenn vegna veðmáls Um fimm prósent fjölskyldusameininga vegna flóttamanna og hælisleitenda Senda á tólf ára palestínskan dreng með hrörnunarsjúkdóm úr landi Hræðsla við brottvísun, fylgi á fleygiferð og veðjað á leiki barna Ísland greiddi atkvæði með auknum rétti Palestínu hjá SÞ Auknar líkur á nýju eldgosi á næstu dögum Reyndi að drepa mann eftir að upp úr sauð á gamlárskvöld Kári tekur ábyrgð á stuðningi Víðis og Þórólfs Stefnir í tveggja turna tal Guðmundur í Afstöðu hundskammar DV Stórri flotaæfingu NATO lauk í Reykjavík „Þegar hann loksins náði að bjóða mér út missti ég hnén“ Rafmagnslaust í Vesturbænum Sjá meira