Töluvert mikið um þjófnaði í höfuðborginni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu biður fólk að hafa varann á og …
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu biður fólk að hafa varann á og sýna árvekni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur minnt fólk á að vera á varðbergi gagnvart þjófum og hvatt til þess að verðmæti líkt og hjól og vespur séu geymd innandyra ef tök eru á. Bifreiðaeigendur eru hvattir til þess að skilja hluti ekki eftir í augsýn í bifreiðum sínum.

„Töluvert hefur verið um þjófnaði á höfuðborgarsvæðinu undanfarið og full ástæða er til að minna fólk á að vera á varðbergi. M.a. er um að ræða þjófnaði á reiðhjólum, rafmagnshlaupahjólum og vespum, auk þess sem nokkuð hefur verið um innbrot í bæði bíla og á byggingarsvæði.

Fólk er því hvatt til að geyma hjól og vespur innandyra, ef það hefur tök á, og umráðamenn ökutækja eru minntir á að hafa ekki hluti í augsýn, sem kunna að freista þjófa,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Þá segir í tilkynningunni að viðbúið sé að þýfi sé selt og því nauðsynlegt að hafa varann á. Lögregla ítrekar jafnframt að fólk láti vita um grunsamlegar mannaferðir (taki ljósmyndir ef slíkt er mögulegt) og að það skrifi hjá sér bílnúmer eða jafnvel lýsingar á fólki, ef það telur að eitthvað óvenjulegt sé að eiga sér stað.

Upplýsingum má koma á framfæri í síma 444-1000, með einkaskilaboðum á Facebook-síðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eða í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert