Íslenski boltinn

Stjarnan kaupir Daníel Finns frá Leikni

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Daníel Finns Matthíasson í Stjörnubúningi í stúkunni á Samsung-vellinum í Garðabæ.
Daníel Finns Matthíasson í Stjörnubúningi í stúkunni á Samsung-vellinum í Garðabæ. stjarnan

Stjarnan hefur keypt Daníel Finns Matthíasson frá Leikni. Samningur hans við Breiðholtsfélagið var að renna út.

Daníel hefur verið sterklega orðaður við Stjörnuna undanfarnar vikur. Hann var í byrjunarliðinu í fyrstu tveimur leikjum Leiknis í Bestu deildinni en var settur á bekkinn gegn ÍBV í 3. umferð og var utan hóps gegn Víkingi um helgina.

Stjarnan kynnti Daníel til leiks með skemmtilegu myndbandi sem birtist á Facebook.

Daníel, sem er 21 árs, lék tuttugu leiki með Leikni í Pepsi Max deildinni á síðasta tímabili og skoraði tvö mörk. Hann lék áður samtals 38 leiki með Breiðhyltingum í Lengjudeildinni.

Daníel lék sinn fyrsta með U-21 árs landsliðinu þegar Ísland mætti Kýpur í undankeppni EM í mars.

Stjarnan hefur góða reynslu af leikmönnum frá Leikni. Fyrir tímabilið 2016 fengu Garðbæingar Hilmar Árna Halldórsson sem er markahæsti leikmaður Stjörnunnar í efstu deild frá upphafi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×