Ronald Koeman um VAR: Bara notað til að dæma gegn Barcelona Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. október 2020 10:31 Ronald Koeman á hliðarlínunni í leik Barcelona og Real Madrid um helgina. AP/Joan Monfort
Ronald Koeman, knattspyrnustjóri Barcelona, var mjög ósáttur með vítið sem Varsjáin gaf Real Madrid í El Clasico um helgina. Real Madrid vann leikinn 3-1. Lykilatriði í leiknum var þegar Sergio Ramos fékk og skoraði úr vítaspyrnu sem kom Real Madrid yfir í 2-1. Dómarinn sá ekki brotið en það var tekið fyrir af myndbandadómurum. Þeir dæmdu að Clement Lenglet hefði togað í treyju Sergio Ramos og Real Madrid fékk víti sem Ramos skoraði úr sjálfur af öryggi. Barcelona vildi tvisvar sinnum fá vítaspyrnu en ekkert var dæmdi, hvorki af dómara leiksins eða Varsjánni. „Ég skil ekki VAR. Ég held að það sé bara notað til að dæma gegn Barcelona,“ sagði Ronald Koeman fúll eftir leikinn en BBC segir frá. Hér fyrir neðan má sjá það sem Barcelona setti inn á Twitter síðu sína þar sem Koeman var að tala um dómarann. Ronald Koeman speaks about the VAR pic.twitter.com/TThcUzzsGD— FC Barcelona (@FCBarcelona) October 24, 2020 Barcelona liðið hefur aðeins náð í sjö stig úr fyrstu fimm leikjum sínum sem þykir ekki gott á þeim bænum en Ronald Koeman er á sínu fyrsta tímabili með liðið. „Það er alltaf svona peysutog í gangi í teignum og mér fannst Ramos brjóta fyrst á Lenglet. Það var vissulega peysutog en ekki svo mikið að hann þyrfti að falla í jörðina eins og hann gerði. Að mínu mati þá var þetta ekki vítaspyrna,“ sagði Koeman. „Við erum búnir að spila fimm leiki og VAR hefur bara verið notað gegn okkur. Það hefur aldrei neitt fallið með okkur,“ sagði Koeman. „Þessi ákvörðun hefur risa áhrif á niðurstöðu leiksins því við vorum að spila vel fram að vítaspyrnudómnum,“ sagði Koeman. Sergio Ramos gaf lítið fyrir þá skoðun hollenska knattspyrnustjórans. „Þetta var augljós vítaspyrna. Hann hélt í treyjuna mína þegar ég var að hoppa upp í boltann. Þetta gæti ekki verið augljósara. Það er ósanngjarnt að gagnrýna dómarann fyrir svona pottþétta ákvörðun,“ sagði Sergio Ramos. Real Madrid náði sex stiga forystu á Barcelona með þessum sigri en Real liðið er í öðru sæti deildarinnar einu stigi á eftir Real Sociedad.
Spænski boltinn Mest lesið Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Körfubolti Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Körfubolti Heimsmet Japanans gildir ekki Sport Leik lokið: Keflavík - Breiðablik 2-1| Sami Kamel afgreiddi Blika Íslenski boltinn Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Fótbolti Krókur Liverpool á móti bragði Enski boltinn Krakkalæti og langt bann eða gult og málið dautt? Íslenski boltinn Hamrén hafnaði 388 milljóna samningi Fótbolti „Eins og að fá hníf í bakið“ Sport Taka gamlar hetjur fram skóna í bikarnum í dag? Íslenski boltinn Fleiri fréttir Júlíus Magnússon með sitt fyrsta mark fyrir Fredrikstad Magnaðsta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Einstefna í Brighton Leik lokið: Keflavík - Breiðablik 2-1| Sami Kamel afgreiddi Blika KR fékk ungan Svía fyrir gluggalok Bikarmeistararnir örugglega áfram eftir smá hikst 350 þúsund krónur i sektir og tveir fá þriggja mánaða bann Tíu Grindvíkingar unnu í Eyjum Æfði með FH en fékk ekki samning og skipti síðan í Hauka Bikarmeistararnir bjóða frítt á völlinn „Hún á eftir að fá að skína aðeins meira“ Hamrén hafnaði 388 milljóna samningi Krókur Liverpool á móti bragði Krakkalæti og langt bann eða gult og málið dautt? Taka gamlar hetjur fram skóna í bikarnum í dag? Bayern hyggst ráða manninn sem United losaði sig við „Á sama tíma í fyrra held ég að þetta hafi verið gult“ „Skrítið að spila á móti liði sem þú varst í þegar þú varst ungur“ Lærisveinninn laut í lægra haldi Tap Hákons tefur fögnuð PSG Palace á mikilli siglingu Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Bruno sneri taflinu við gegn botnliðinu Óvænt U-beygja í Katalóníu Mbappé í stuði er PSG gott sem tryggði titilinn Alfons og félagar nálgast Meistaradeildarsæti Áhugaverður skiptidíll FH og Vals á leikdag Uppgjörið: Valur - FH 3-0 | Nýtt leikskipulag skilaði frábærum árangri Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans á Íslandi Sjá meira
Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Körfubolti
Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Körfubolti