Grótta og KR víxla heimaleikjum

KR-ingar fá Gróttu í heimsókn á fimmtudaginn.
KR-ingar fá Gróttu í heimsókn á fimmtudaginn. mbl.is/Íris

Nágrannaliðin Grótta og KR mætast í fyrsta skipti í efstu deild karla í fótbolta á fimmtudaginn kemur en nú hefur leikurinn verið fluttur á milli valla.

Spila átti á Vivaldi-vellinum á Seltjarnarnesi klukkan 19.15 um kvöldið en í staðinn verður leikið á Meistaravöllum hjá KR-ingum klukkan 16.15 á fimmtudaginn.

Liðin eiga líka að mætast í lokaumferð deildarinnar laugardaginn 31. október og sá leikur verður í staðinn á Seltjarnarnesi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert