Innlent

Rekstri flug­vélar Land­helgis­gæslunnar hætt í hag­ræðingar­skyni

Bjarki Sigurðsson skrifar
TF-SIF verður sett á sölu seinna á árinu.
TF-SIF verður sett á sölu seinna á árinu. Vísir/Friðrik Þór

Rekstri TF-SIF, eftirlitsflugvélar Landhelgisgæslunnar, verður hætt á árinu vegna hagræðingar. Dómsmálaráðuneytið tilkynnti gæslunni þetta fyrr í vikunni og hefst söluferli á næstunni. 

Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni segir að rekstur gæslunnar hafi reynst erfiður síðustu mánuði sökum gífurlegra olíuverðshækkana, meira umfangs og verri afkomu af þátttöku í Frontex en vænst var. 

Í apríl á síðasta ári upplýsti Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, dómsmálaráðuneytið um að forsendur rekstraráætlunar Landhelgisgæslunnar væru brostnar sökum þess að fjárheimildir hefðu ekki fylgt umfangsmeiri rekstri og ekki síður vegna þeirra miklu hækkana sem orðið hefðu á olíuverði og öðrum aðföngum.

Því voru fjárveitingar til Landhelgisgæslunnar auknar um sex hundruð milljónir króna í fjárlögum en það reyndist ekki nóg vegna rekstrarhalla síðasta árs. 

„Þegar ljóst var að stofnunin fengi ekki frekari fjárframlög tók við samtal við dómsmálaráðuneyti um hvaða leiðir væru færar til að koma fjárhag Landhelgisgæslunnar á réttan kjöl. Enginn góður kostur var í stöðunni og það eru okkur sár vonbrigði að neyðast til að hætta rekstri eftirlitsflugvélarinnar en hún er sérútbúin eftirlits-, björgunar- og sjúkraflugvél og mikilvæg eining í almannavarnakeðju landsins,“ er haft eftir Georg í tilkynningu. 

Hann segir ákvörðunina vera mikil afturför í viðbragðs- og eftirlitsgetu þjóðarinnar. Vélin sé ein af mikilvægustu einingum viðbragðskeðju stofnunarinnar. 

„Með þessari erfiðu ákvörðun er stórt skarð höggvið í útgerð Landhelgisgæslunnar. Þá teljum við veru flugvélarinnar hér á landi vera brýnt þjóðaröryggismál, sér í lagi í ljósi breyttrar heimsmyndar,“ segir Georg.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×