Fátíð í beinni Stefán Árni Pálsson skrifar 5. desember 2020 14:53 Einar, Bubbi, Kristín og Tolli í vinnustofu Tolla. Þar er löngu orðin árviss viðburður og jólahefð hjá Tolla Morthens myndlistarmanni að bjóða gestum og gangandi til sín á opið hús í tengslum við fullveldisdaginn okkar 1. desember en í ár var ákveðið að breyta aðeins út af vananum og verður fátíðinni slegið upp á laugardaginn.
Af hverju fátíð, jú fátíð vegna þess að sóttvarnareglur leyfa ekki fleiri en tíu manns á vinnustofunni og þess vegna verður fátíðinni streymt í gegnum Facebook og á Vísi. Vinnustofan verður svo opin alla föstudaga og laugardaga fram að jólum þar sem hægt verður að hitta Tolla. Bubbi Morthens og Einar Már Guðmundsson hafa verið fasta gestir Tolla á fullveldishátíðinni þessi þrjátíu ár en ýmsir aðrir góðir gestir hafa reki á fjörur málarans á þessum árum sem eru að baki. Í ár verða vitringarnir þrír í fararbroddi en með þeim á laugardaginn verður Kristín Morthens listamálari sem síðustu ár hefur mest verið að vinna og sýna verk sín í Kanada og Þýskalandi. Síðustu misseri hefur hún hins vegar verið hér heim vegna aðstæðna og unnið hér að sinni sköpun. Kristín mun sýna olíumálverk en verk hennar eru litrík og kraftmikil og hafa vakið mikla athygli. Áralöng hefð Í fyrra tók Bubbi í fyrsta sinn upp pensilinn með þeim hætti að eftir hann sátu fullsköpuð verk en hann hefur verið að mála olíuverk byggð á mörgum þekktustu textanna hans. Verk hans seldist hratt í fyrra en nú er hann með tíu ný verk í seríunni. „Þetta er áralöng hefð hjá mér og mér þykir afar vænt um þetta verkefni og þakklátur að vinir mínir vilja koma með mér í þetta. Ég nýti líka alltaf þetta tækifæri til að taka með mér ungt upprennandi og kraftmikið listafólk til að kynna fyrir gestunum mínum. Það er ábyrgðar hlutur að við sem eldri erum greiðum götur þeirra sem er að byrja á þessari vegferð sem við þekkjum svo vel. Í þessu tilfelli rennur mér blóðið til skyldunnar í orðsins fyllstu merkingu,” segir Tolli. „Ég hef verið með stóra bróðir að mála og átt geggjaðar stundir og ég fer í gymmið mjög snemma og kem svo til hans. Nokkrum sinnum í viku kemur til hans þjálfari í bardaga íþróttum þá mála ég meðan Tolli er frjáls í flæðinu,” sagði Bubbi nýlega á Facebook þar sem hann birti mynd af stóra bróður æfa box í stúdíóinu á Héðinsgötu. Dagskráin verður milli kl 15:00 og 16:00 á Facebook síðu Tolla og sannarlega velkomnir þar enda fjöldatakmarkanir engar þar. Þar munu Kristín, Bubbi og Tolli segja frá verkunum sínum og kynna þau í mynd og svo mun Einar Már lesa upp úr nýútkominni bók sem eru endurprentun af þremur af hans þekktustu ljóðabókum og svo mun Bubbi Morthens leika nokkur vel valin lög. Þetta verður því vönduð dagskrá sem allir geta notið heima í hlýjunni í frostkuldanum sem spáð er um allt land um helgina.
Menning Tónlist Myndlist Mest lesið „Kveiktum næstum í öllu sumarbústaðalandinu“ Lífið Mikið fjör á opnun kosningaskrifstofu Gnarr Lífið Sjarmerandi og seiðandi á sjötugsaldri Lífið Sagan á bak við djarft listaverk Ásdísar Ránar Lífið Óstundvísi Steina sögð kosta tugi milljóna dollara Lífið „Nútíminn er trunta“ Lífið Seiðandi glæsikvendi á lausu Lífið Halda samstöðutónleika á sama tíma og Ísland keppir í Eurovision Lífið Eltihrellirinn í Baby Reindeer íhugar að leita réttar síns Bíó og sjónvarp Swing og hópkynlíf fyrir byrjendur! Lífið Fleiri fréttir Mikið fjör á opnun kosningaskrifstofu Gnarr Sjarmerandi og seiðandi á sjötugsaldri „Kveiktum næstum í öllu sumarbústaðalandinu“ „Nútíminn er trunta“ Sagan á bak við djarft listaverk Ásdísar Ránar Rithöfundurinn Paul Auster er látinn „Eurovision mamman“ með gleði og kærleika að vopni Múgur og margmenni fylgdust með ótrúlegu ostakúluáti „Hin raunverulegu stólaskipti fóru fram í dag“ Óstundvísi Steina sögð kosta tugi milljóna dollara Gerða og glæsilegar gellur á Edition Swing og hópkynlíf fyrir byrjendur! Snorri og Harpa selja á Njálsgötu Halda samstöðutónleika á sama tíma og Ísland keppir í Eurovision Una Torfa negldi slagara með Fleetwood Mac Maikai-hjónin eignuðust stúlku Bitcoin fjárfestar gerðu sér glaðan dag í Grósku Hvernig á að kenna hundi að rekja spor og slaka á Disneydraumurinn varð loks að veruleika Langþráður draumur Völu Eiríks rættist Álfa- og jólahúsið í Laugardalnum heyrir sögunni til Draumur Katrínar Eddu og Markúsar verður að veruleika Trítaði sig og fékk sér Teslu: „Hvað ertu með í laun eiginlega?“ Hönnunarhæð Karinar í Nola til sölu Baldurs og Felix-fáni falur Menningarunnendur nutu veðurblíðunnar í miðborginni Andstaða frá Íslandi og vera Ísraelsmanna litar keppnina í ár Allt það besta úr þáttaröðinni Öll þessi ár Fyrstu kaupendur hafi þessi atriði í huga Rikki G svaraði kallinu og lét draum Ólafs Jóhanns rætast Sjá meira