Þriggja bíla árekstur við Korputorg

Sjúkrabíll á ferð. Mynd úr safni.
Sjúkrabíll á ferð. Mynd úr safni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Árekstur þriggja bíla varð á Vesturlandsvegi upp úr klukkan 7 í morgun. Slysið átti sér stað nálægt verslunarkjarnanum Korputorgi.

Í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að slysið hafi orsakast svo að einn ökumaður hafi ekið bifreið sinni aftan á aðra, sem lenti síðan á þeirri þriðju.

Flytja þurfti einn með sjúkrabíl á slysadeild til skoðunar og eina bifreið þurfti að fjarlægja af vettvangi með dráttarbíl.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert