Rússar ætla að sækja drónann í Svartahaf Samúel Karl Ólason skrifar 15. mars 2023 15:00 Dróni af gerðinni MQ-9 Reaper. EPA/Yfirliðþjálfinn Paul Holcomb Rússar ætla að reyna að sækja brak bandaríska drónans sem brotlenti í Svartahafi í gær. Bandaríkjamenn segja drónann hafa lent í hafinu eftir að rússneskri herþotu hafi verið flogið utan í hann.
Fjölmiðlar í Rússlandi hafa eftir Nikolai Patrushev, embættismanni úr þjóðaröryggisráði Rússlands, að það komi ekki annað til greina en að reyna að ná brakinu. Óljóst sé hvort það sé hægt en þeir verði að reyna. RIA fréttaveitan, sem er í eigu rússneska ríkisins, hefur eftir Patrushev að atvikið með drónann sanni að Bandaríkjamenn hafi beina aðkomu að stríðinu í Úkraínu. Frá Washington má heyra að drónanum, sem var af gerðinni MQ-9 Reaper, hafi verið flogið í hefðbundnu eftirlitsflugi yfir alþjóðlegu hafsvæði yfir Svartahafi. Bandaríkjamenn segja að rússneskir flugmenn á tveimur SU-27 orrustuþotum hafi flogið í kringum drónann og þar að auki skvett eldsneyti á hann. Þeir segja einnig að Rússarnir hafi flogið í kringum drónann í allt að fjörutíu mínútur þegar ein orrustuþotan rakst utan í hann. Við það hafi þurft að lenda drónanum á alþjóðlegu hafsvæði í Svartahafi. Bandaríkjamenn telja líklegt að orrustuþotan hafi skemmst en segja að flugmanni hennar hafi tekist að lenda henni. Dróninn er sagður hafa lent í sjónum suðaustur af hinni frægu Snákaeyju, um þrjátíu sjómílur frá strönd Úkraínu. Lloyd Austin, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, tjáði sig um atvikið í dag. Hann sagði meðal annars að hegðun rússnesku flugmannanna hefði verið „hættuleg“. Hann sagði einnig að Bandaríkin myndu áfram fljúga í alþjóðlegri lofthelgi og annarsstaðar þar sem það væri löglegt. Rússar halda því aftur á móti fram að drónanum hafi verið flogið inn á lokað svæði nærri landamærum Rússlands. Þá segja þeir að dróninn hafi lent í hafinu eftir að flugmaður hans hafi misst stjórn á honum. Sjá einnig: Sendiherra Rússa í Bandaríkjunum kallar uppákomuna „ögrun“ AP fréttaveitan segir Bandaríkjamenn vera að íhuga að hvort birta eigi myndefni úr drónanum sem sýnir atvikið. Reaper-dróninn er um ellefu metra langur, fjögurra metra hár og rúm tvö tonn að þyngd. Hægt er að fljúga honum í allt að fimmtíu þúsund feta hæð og um 2.500 kílómetra. Hann getur borið allt að átta eldflaugar og ber einnig margskonar skynjara.
Rússland Bandaríkin Innrás Rússa í Úkraínu Fréttir af flugi Hernaður Mest lesið „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Innlent Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum Innlent „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Innlent Búast má við slyddu Veður Lífshættuleg meðhöndlun barna á vöggustofum og þrír eftir í bakgarðshlaupi Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Ísrael samþykkir ekki vopnahlé Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Íhaldsflokkurinn laut í lægra haldi í sveitarstjórnarkosningum Tuga enn saknað og 55 látnir Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Sjá meira