Danir telja sprengingarnar hafa verið skemmdarverk Árni Sæberg skrifar 27. september 2022 19:52 Blaðamannafundurinn í kvöld var haldinn í tilefni af því að Eystrasaltsgasleiðslan var opnuð. Hún tengir Noreg við Danmörku og Pólland í þeim tilgangi að minnka nauðsyn ríkjanna til að flytja inn gas frá Rússlandi. Sean Gallup/Getty Images Forsætisráðherra Danmerkur sagði á blaðamannafundi fyrr í kvöld að dönsk yfirvöld telji að sprengingarnar tvær, sem ollu leka á Nord stream gasleiðslunum í gær, hafi verið skemmdarverk. Hún sagðist þó ekkert geta gefið upp um hverjir eru taldir standa að baki skemmdarverkum. „
Það er mat yfirvalda að um vísvitandi aðgerðir sé að ræða. Þetta er ekki slys,“ sagði Mette Frederiksen forsætisráðherra á blaðamannafundi á sjöunda tímanum í kvöld. Danska ríkisútvarpið greinir frá. Tvær sprengingar greindust í gær á mælitækjum í Svíþjóð og Noregi þegar þrjú göt mynduðust á Nord Stream 1 og Nord Stream 2 leiðslunum í Eystrasalti. Danir birtu í dag myndefni sem sýnir lekana á yfirborði hafsins. Frederiksen sagði á blaðamannafundinum að dönsk yfirvöld litu atvikið alvarlegum augum, staðan væri eins alvarleg og hún gæti orðið. Þó ætlaði hún ekki að fara út í getgátur um það hver gæti staðið að baki sprengingunum. Jeppe Kofod, utanríkisráðherra Danmerkur sagði á fundinum að ekki hafi enn verið haft samband við Rússa vegna málsins en í dag hafa verið uppi getgátur um að þeir gætu borið ábyrgð á sprengingunum. Frederiksen bætti við að danir hefðu hækkað viðbúnaðarstig vegna nálægðar lekanna við Borgundarhólm. þrátt fyrir að ekki væri talið að íbúum eyjarinnar stafi hætta af lekunum. Dan Jørgensen loftslags-, orku- og birgðaráðherra útskýrði á fundinum að leiðslurnar tvær liggi á sjötíu til níutíu metra dýpi, séu tólf sentímetrar á þykkt, og samanstandi af stáli og steypu. „Þetta þýðir að ekki hefur verið um slys af völdum akkeris eða álíka að ræða,“ sagði hann.
Danmörk Orkumál Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Þýskaland Svíþjóð Nord Stream-leiðslurnar í Eystrasalti Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Innlent Börnum safnað saman og þau skotin Erlent Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Innlent Eldvörp líkleg næst Innlent Stöðugt landris og hugað að rýmingu Innlent Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Erlent Dýrin séu dauð, veik, horuð og í miklum vanhöldum Innlent Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Innlent Sýknaður af nauðgun en enginn vafi að konan telji á sér brotið Innlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Fleiri fréttir Færeyingar áforma 4.500 króna aðgangseyri á alla ferðamenn Börnum safnað saman og þau skotin Skotið á íbúa Rafah og heilbrigðiskerfi Gasa hrunið Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Lýsa hræðilegu ofbeldi fyrir sjóslys þar sem tugir létu lífið Takmarkar hernaðaraðstoð verði gerð árás á Rafah Grænlendingar segja sig úr Norðurlandaráði Skýrustu merkin um lofthjúp um bergreikistjörnu til þessa Enn og aftur tafir á málaferlum gegn Trump Umfangsmestu árásir Rússa í nokkrar vikur Trump blótaði þegar Daniels lýsti meintu samneyti þeirra Hrina árása á þýska stjórnmálamenn veldur áhyggjum Um 800.000 Evrópubúar taldir hafa fallið fyrir kínverskri svikamyllu Bandaríkjamenn stöðvuðu vopnasendingu til Ísrael í síðustu viku Annar hvirfilbylurinn í Oklahoma á rúmum mánuði Segir Bandaríkjamenn þurfa að þrýsta á Ísraela Skotárás við heimili Drake Stormy Daniels í dómsal með Trump Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Reynt að siga lögreglu á vitni í málinu gegn Trump Fundu hlerunarbúnað í fundarherbergi ráðherra Pútín hefur fimmta kjörtímabilið með meiri völd en áður Sagðist saklaus af því að hafa drepið með eitruðum sveppum Verðhækkanir á döner-kebab eitt helsta áhyggjuefni Þjóðverja Geimskoti Starliner var frestað í nótt Segja nýjar reglur um merkingar blekkingarleik laxeldisfyrirtækja Ísraelsmenn í aðgerðum í Rafah og taka yfir landamærastöðina Tillagan „langt frá“ grundvallarkröfum Ísraela Ferðamannastaðir Færeyja lokaðir vegna viðhalds Bein útsending: Starliner ber geimfara til geimstöðvarinnar Sjá meira