Skotinn til bana eftir útistöður við nágranna

Í tilkynningu lögreglunnar í Volusia-sýslu segir að Edward Druzolowski, maður …
Í tilkynningu lögreglunnar í Volusia-sýslu segir að Edward Druzolowski, maður á áttræðisaldri sem býr í næsta húsi, hafi verið handtekinn vegna málsins. Ljósmynd/Volusia Sheriff's Office

Karl­maður á fimm­tugs­aldri var skot­inn til bana er hann var að snyrta tré við heim­ili föður síns í Volusia-sýslu í Flórída í Banda­ríkj­un­um á mánu­dag.

Bri­an Ford, fórn­ar­lambið, var úti ásamt átta ára syni sín­um þegar að ráðist var á hann. 

Í til­kynn­ingu lög­regl­unn­ar í Volusia-sýslu seg­ir að Edw­ard Druzolowski, maður á átt­ræðis­aldri sem býr í næsta húsi, hafi verið hand­tek­inn vegna máls­ins.

Í til­kynn­ing­unni seg­ir að Druzolowski hafi játað á sig mann­drápið við yf­ir­heyrslu. 

Sam­kvæmt lýs­ing­um Druzolowski af at­b­urðarás­inni var Ford inn­an hans lóðarmarka að snyrta tré föður síns. Druzolowski skipaði Ford að yf­ir­gefa lóðina sína und­ir eins og hótaði hon­um með byssu.

Þegar Ford neitaði að fara skaut Druzolowski hann.

Móðir Ford hringdi í kjöl­farið á neyðarlín­una. Er viðbragðsaðilar komu á vett­vang voru end­ur­lífg­un­ar­tilraun­ir gerðar en án ár­ang­urs. Var Ford úr­sk­urðaður lát­inn á vett­vangi.

Eig­in­kona Druzolowski, sem einnig hringdi á neyðarlín­una, sagði eig­in­mann sinn ekki hafa ætlað sér að skjóta Ford, hann hafi ein­ung­is ætlað að hræða Ford.

mbl.is
Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert