Newcastle í Meistaradeildina – Leicester upp fyrir Leeds

Dan Burn í baráttu við Kelechi Iheanacho í kvöld.
Dan Burn í baráttu við Kelechi Iheanacho í kvöld. AFP/Lindsey Parnaby

Newcastle United og Leicester City gerðu markalaust jafntefli þegar þau áttust við í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu karla í kvöld.

Leikurinn var mikilvægur fyrir bæði lið þar sem jafnteflið þýðir að Newcastle er formlega búið að tryggja sér sæti í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili þar sem liðið getur ekki endað neðar en í fjórða sæti deildarinnar.

Leicester fór upp fyrir Leeds United en bæði lið eru þó enn í fallsæti með 31 stig, tveimur stigum á eftir Everton í síðasta örugga sætinu.

Leicester er hins vegar með betri markatölu og því í 18. sæti á meðan Leeds er sæti neðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert