Kjaftshögg á Kirkjubæjarklaustri Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 29. nóvember 2020 12:42 Sandra Brá Jóhannesdóttir, sveitarstjóri Skaftárhrepps, sem segir að lokun verslunarinnar á Kirkjubæjarklaustri sé kjaftshögg fyrir samfélagið. Magnús Hlynur Hreiðarsson Sandra Brá Jóhannesdóttir, sveitarstjóri Skaftárhrepps segir það kjaftshögg fyrir íbúa sveitarfélagsins að Krónan ætli að loka Kjarvalsverslun sinni á Kirkjubæjarklaustri um áramótin.
Hljóðið í íbúum á Kirkjubæjarklaustri er þungt þessa dagana eftir að það spurðist út af einu matvöruversluninni á staðnum yrði lokað um áramótin. „Kjaftshögg fyrir samfélagið“, segir sveitarstjóri Skaftárhrepps. Forsvarsmenn verslunarinnar Kjarvals á Kirkjubæjarklaustri tilkynntu í vikunni að versluninni yrði lokað um áramótin. Tilkynningin kom illa við íbúa á Klaustri og í sveitunum í kring, ásamt kjörnum fulltrúum í sveitarstjórn Skaftárhrepps, ekki síst hvað fyrirvarinn var stuttur. Sandra Brá Jóhannesdóttir, sveitarstjóri segir hljóðið þung í íbúum. „Já, þetta kom verulega flatt upp á okkur, þetta er kjaftshögg fyrir samfélagið. Það er talsverð reiði og fólk er brugðið, þetta er náttúrulega veruleg þjónustuskerðing og það hafa verið fleiri högg verið hérna undanfarin ár, bæði er ekkert pósthús hérna og bankinn er með verulega skerta starfsemi, þannig að þetta var dropinn sem fyllti mælinn, fólki er nóg boðið,“ segir Sandra Brá. Heimamenn á Klaustri, sem eiga Systrakaffi hafa keypt húsnæði Kjarvals og þeir hafa hug á því að það verði aftur verslun í húsinu en hvernig þeim málum verður háttað veit engin. En hvaða skýringu hafa forsvarsmenn Krónunnar, sem reka Kjarvalsverslunina á Kirkjubæjarklaustri gefið fyrir lokuninni? „Bara fyrst og fremst að þetta sé ekki hagkvæm eining fyrir þá,“ sagði Sandra Brá, sem hefur verið falið af sveitarstjórn að leita leiða til að tryggja að áfram verði dagvöruverslun rekin í sveitarfélaginu. 650 manns búa í Skaftárhreppi, þar af um 200 á Kirkjubæjarklaustri. Mikill ferðamannastraumur er í sveitarfélaginu í eðlilegu árferði.Magnús Hlynur Hreiðarsson
Skaftárhreppur Verslun Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Forsetaframbjóðandi er á villigötum“ Innlent „Sjálfum leiðast mér þessar nasistalíkingar“ Innlent OpenAI hættir notkun raddar eftir inngrip lögmanna Johansson Erlent Einn látinn eftir mikla ókyrrð í lofti Erlent Breytingar í borholum á Reykjanesi Innlent Stefnir í spennandi og sögulegar forsetakosningar Innlent Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Réttað yfir Hinrik XIII og öðrum leiðtogum valdaránstilraunar Erlent Mynd fer á flug í kjölfar tilrauna til að láta fjarlægja hana Erlent Lilja fundar með RÚV um „nýlenskuna“ Innlent Fleiri fréttir Herþristar á níræðisaldri til sýnis á Reykjavíkurflugvelli Íbúar undirbúa hópmálsókn vegna uppkaupa í Grindavík Líst best á Baldur og Höllu en verst á Ástþór Samningar loks í höfn eftir fjögurra ára samningsleysi „Forsetaframbjóðandi er á villigötum“ Um sautján milljónir rúmmetra af kviku bæst við kvikuhólfið Hafa enga trú á að hvalveiðar fari fram í sumar Breytingar í borholum og fylgi frambjóðenda enn á hreyfingu Stefnir í spennandi og sögulegar forsetakosningar Erfiðast að fá Baldur til að tala um sjálfan sig Nýjar reglur um sjálfbæra landnýtingu Skúli metinn hæfastur í Hæstarétt Breytingar í borholum á Reykjanesi „Sjálfum leiðast mér þessar nasistalíkingar“ Lögreglan lýsti eftir fimmtán ára gamalli stúlku Hafa náð lendingu um staðarval nýs kirkjugarðs Lilja fundar með RÚV um „nýlenskuna“ Katrín leiðir í nýrri könnun Prósents „Viðurkenning á því að þetta er blaðamennska sem hann var að stunda“ Þolinmæði saminganefnda á þrotum Gæsluvarðhald yfir Davíð Viðarssyni framlengt 80 til 120 herskip lágu í Hvalfirði Fyrsti stríðsþristurinn lentur Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sé vanhæft til að takast á við aðstæðurnar Handtökuskipun á hendur forsætisráðherra og kjaradeila Séra Eva Björk ráðin biskupsritari Fimm stríðsþristar á leiðinni til landsins Samningur BÍ í höfn í Karphúsinu Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar „Ég stóð bara með sóttvarnalækni“ Sjá meira