Lægstu laun muni hækka þegar samningur verður til Kristinn Haukur Guðnason skrifar 2. júní 2023 08:34 Heiða segir erfitt fyrir sveitarfélögin að vera í deilum við starfsfólk. Vísir/Vilhelm Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir að bæði sveitarfélögin og BSRB séu sammála um að lægstu laun eigi að hækka. Staðan í kjaraviðræðum sé ekki björt núna en hún segist vongóð um að samningar náist fyrr en seinna.
Heiða Björg var gestur í Bítinu í morgun þar sem hún ræddi stöðuna í vinnudeilu sveitarfélaganna og BSRB, þótt hún sé ekki beinn þátttakandi í viðræðunum. Kemur hún þó að því að skipa samninganefnd og setja markmið fyrir viðræðurnar. Sagði hún að sveitarfélögin séu í samfloti með hinu opinbera, það er ríkinu og Reykjavíkurborg sem semur sér. Allir þessir aðilar hafi sameiginleg markmið hvað varðar launamál. „Við getum ekki breytt þessu í samningagerð við eitt verkalýðsfélag,“ sagði Heiða. „Við þurfum þá að taka einhverja heildarákvörðun um launasetningu á Íslandi og hvaða hópa við viljum hækka.“ Réttur fólks að fara í verkfall Heiða sagði eðlilegt að fólk myndi takast á um kaup og kjör en það væri vitaskuld vonbrigði þegar vinnudeilur verða það harðar að það komi til verkfalls. Það þurfi þó að sýna þessu skilning og að það sé réttur fólks að nýta verkfallsrétt sinn. „Okkur finnst erfitt að vera í deilum við okkar starfsfólk því að við leggjum okkur fram um að vera góðir vinnustaðir og búa vel að okkar starfsfólki,“ sagði Heiða. Það hefði þó verið þannig lengi að sveitarfélögin greiddu lægstu launin. Bæði sveitarfélögin og BSRB væru hins vegar sammála um það að lægstu launin muni hækka í samningi, þegar hann loksins verður til. Hvorugur fari ánægður frá borði Hvenær það verður sé ekki gott að segja. Heiða sagðist bjartsýn á að verkfall yrði ekki langt fram á sumarið. Verið væri að vinna að árs samningi og svo verður farið strax að huga að næstu samningagerð. Ásteytingarsteinninn væri krafa BSRB um að fara með hækkanir inn í síðasta samningstímabil. Það væri ekki hægt og að sveitarfélögin hefðu farið yfir það með lögfræðingum sínum. Hún gerir hins vegar ráð fyrir að þegar samningur loks náist fari hvorugur aðili fyllilega ánægður frá borði, eins og venjan sé í kjaradeilum. „Staða sveitarfélaganna er eins og hún er. Við erum flest að reka okkur í járnum við að ná endum saman og reka samfélögin okkar vel. En ég held að heimilin séu mörg líka þar. Margt fólk í BSRB er ekki hálaunafólk og ég skil vel að þau vilji hærri laun,“ sagði Heiða. Sáttafundur forystu samninganefnda BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga stóð til klukkan átta í gærkvöldi en fólk hafði þá setið á fundi frá klukkan eitt eftir hádegi í gær. Strax hefur verið boðað til annars fundar í karphúsinu klukkan tíu fyrir hádegi.
Bítið Kjaramál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Innlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Fylgjast grannt með gangi mála Innlent Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Innlent Efstar með ómarktækan mun á milli sín Innlent Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Innlent „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Innlent Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Innlent Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Fylgjast grannt með gangi mála Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Fjögurra bíla árekstur efst í Ártúnsbrekku Björn Leví segir Harald hafa fundið skálkaskjól í orðum Bjarna Flæði innan við einn rúmmetri á sekúndu „Ég hafna því að við séum ekki að sinna velferð dýra á þessum bæ” Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg „Ríkisfjármálin eru í ruglinu“ Atvinnubílstjórar sýni minnstu tillitssemina Orkuveitan skilar Elliðaárdalnum Stuðningsmenn Katrínar áhugasamari en aðrir Lengri lokun þar sem kerfið hefur „hangið á bláþræði“ Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til „Allir að bíða eftir þessum atburði sem ekki skeður“ Nýborin lömb finnist dauð og deyjandi úr vosbúð „Hef haft áhyggjur af fangelsismálum frá því ég kom í embætti“ „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Kannabis en ekki kjólar í kassanum Halla Hrund áfram efst Fjöldaúrsagnir kvenna úr mannkyninu Leki kom að bát út af Barða Óbreyttir stýrivextir, fangamál og dræmt Eurovision áhorf Sjá meira