Lestur Fréttablaðsins hrynur Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 2. febrúar 2023 13:29 Höfuðstöðvar Fréttablaðsins í miðborg Reykjavíkur. Vísir/Vilhelm Lestur Fréttablaðsins hefur minnkað um nærri helming, eftir að ákveðið var að hætta að dreifa blaðinu á heimili fólks.
Viðskiptablaðið greinir frá og vísar í nýjustu lestrarkönnun Gallups, sem aðgengileg er hér. Þar má sjá að á milli síðastliðins desembermánaðar og janúarmánaðar fór hlutdeild Fréttablaðsins í lestri úr 28,2 prósent í 15,7 prósent. Er að um að ræða rúma 44 prósent lækkun á milli mánaða. Ákveðið var í upphafi árs að hætta að dreifa blaðinu inn á heimili íbúa á höfuðborgarsvæðinu sem og á Akureyri. Þess í stað var ákveðið að blaðið yrði aðgengilegt í þar til gerðum stöndum á 120 fjölförnum stöðum á höfuðborgarsvæðinu, á Suðurnesjum, Árborgarsvæðinu, Akranesi, Borgarnesi og á Akureyri auk þess sem það verður gefið út í rafrænu formi eins og verið hefur. Þegar litið er til höfuðborgarsvæðisins er breytingin meiri. Þar fer lestur Fréttablaðsins úr 34,6 prósentum í 17,2 prósent. Er þar um að ræða rétt rúmlega 50 prósent minnkun á lestri. Morgunblaðið er því orðið mest lesni prentmiðillinn af þeim þremur sem koma út oftar en vikulega. Morgunblaðið bætir lítillega við sig lestri yfir sama tímabil, fer úr 17,8 prósent í 18,9. Sé bara litið til höfuðborgarsvæðisins fer lestur Morgunblaðsins úr 19,7 prósent í 19,9 prósent. Í frétt Fréttablaðsins, þar sem tilkynnt var um breytingar á dreifingu blaðsins, kom fram að ekki væri búist við því að þær myndu hafa áhrif á lesturinn. Fréttablaðið rekur einnig fréttavefinn frettabladid.is, sem hefur um nokkurt skeið verið þriðji mest lesni vefur landsins. Sjá má á vef Gallups að lestur þar hefur aukist frá því í desember. Vefurinn á samt sem áður þó nokkuð í land til að ná lestri Vísis og mbl.is, sem bítast um yfirleitt um efsta sætið á listanum. Ekki hefur náðst í Jón Þórisson, forstjóra Torgs, við vinnslu fréttarinnar.
Fjölmiðlar Tengdar fréttir Hætta að dreifa Fréttablaðinu á heimili fólks Fréttablaðið greinir frá því að hætt verði að dreifa blaðinu inn á heimili íbúa á höfuðborgarsvæðinu sem og á Akureyri. 2. janúar 2023 11:19 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Skelltu líka í lás á Exit og í Nýju vínbúðinni Viðskipti innlent Fjármálastjóri Play segir upp Viðskipti innlent Innsigla B5 að kröfu Skattsins Viðskipti innlent Reksturinn þungur í kjölfar „yfirgangs og afskipta lögreglu“ Viðskipti innlent Endurgjöf: Það sem þú átt ekki að gera Atvinnulíf Tryggðu sér 300 milljóna króna fjármögnun Viðskipti innlent Eitruð vinnustaðamenning algeng og margfaldar líkur á kulnun Atvinnulíf Sagðir vilja frekar loka TikTok en selja Viðskipti erlent Töpuðu þremur milljörðum á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Nú er hægt að elta góða veðrið um landið með kortavef Já.is Samstarf Fleiri fréttir Reksturinn þungur í kjölfar „yfirgangs og afskipta lögreglu“ Fjármálastjóri Play segir upp Tryggðu sér 300 milljóna króna fjármögnun Skelltu líka í lás á Exit og í Nýju vínbúðinni Innsigla B5 að kröfu Skattsins Töpuðu þremur milljörðum á fyrsta ársfjórðungi Farsímatekjur undir væntingum Hæstiréttur sker úr um hvort taka hafi mátt bjór úr hillum Samþykkja helming umsókna um sölu eigna fyrir lok vikunnar Selma nýr formaður Kvenna í orkumálum Verðbólgan minnkar en vextirnir hækka Minnsta verðbólga í rúm tvö ár Tekjuhæsti fyrsti ársfjórðungur í sögu Icelandair Hefja viðræður um kaup á 47 þúsund fermetrum af atvinnuhúsnæði Reynslunni ríkari og opnar Wilson‘s Pizza á ný Stefna að opnun Fiskbúðarinnar við Sundlaugaveg í maí Anna Kristín nýr framkvæmdastjóri hjá atNorth Oculis komið á markað Viðskipti með bréf í Oculis hefjast á morgun Hættir sem fjármálastýra Ljósleiðarans Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Grænna skáta Fækkuðu tímum í skriffinnsku um tugi klukkustunda á mánuði Breytinga þörf eigi Landsbankinn ekki að keppa á markaði Jón nýr formaður bankaráðs Landsbankans Sýn hættir við að selja vefmiðla og útvarp Sólin sest fyrir fullt og allt á Sælunni Opna verslun á Keflavíkurflugvelli þar sem Arion var áður Bein útsending: Hraunflæðihermar og hönnun hraunvarna Hafa náð nýjum sölusamningi í Bandaríkjunum Framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu til Visku Sjá meira
Hætta að dreifa Fréttablaðinu á heimili fólks Fréttablaðið greinir frá því að hætt verði að dreifa blaðinu inn á heimili íbúa á höfuðborgarsvæðinu sem og á Akureyri. 2. janúar 2023 11:19