Sport

Vésteinn lenti í kulnun: „Endurheimti manneskjuna á bakvið þjálfarann“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Vésteinn Hafsteinsson er á heimleið eftir aldarfjórðung í Svíþjóð.
Vésteinn Hafsteinsson er á heimleið eftir aldarfjórðung í Svíþjóð. vísir/vilhelm

Vésteinn Hafsteinsson fór í kulnun fyrir hálfu ári. Það hafði áhrif á ákvörðun hans að flytja heim til Íslands og taka við starfi afreksstjóra ÍSÍ.

Vésteinn hefur búið í Svíþjóð í aldarfjórðung og þjálfað marga af fremstu kösturum landsins, meðal annars heimsmethafann og Ólympíumeistarann í kringlukasti, Daniel Ståhl. Í fyrra var hann valinn þjálfari ársins í Svíþjóð.

Í samtali við SVT Sport í Svíþjóð greinir Vésteinn frá því að hann hafi verið kulnaður í starfi en hafi náð að snúa blaðinu við með hjálp sérfræðinga.

„Ég var í vandræðum með eldmóðinn. Einhvers staðar á bakvið allt er manneskjan Vésteinn Hafsteinsson. Þjálfarinn hefur verið meira í forgrunni. Ég hef fengið frábæra hjálp frá læknum og sálfræðingum og það er hægt að segja að þeir hafi endurheimt þessa manneskju,“ sagði Vésteinn.

„Núna ég alltaf skýrar hvað er mikilvægt fyrir mig, konu mína og fjölskyldu. Svo er þjálfarinn númer tvö. Ég er ævinlega þakklátur þeim sem hjálpuðu mér. Þeir breyttu lífi mínu.“

Í viðtali við SVT segist Vésteini sjaldan eða aldrei liðið jafn vel og um þessar mundir.vísir/vilhelm

Vésteinn segir að þjálfarastarfið hafi alltof lengi verið númer eitt hjá sér en nú sé forgangsröðunin önnur.

„Þú færð marga mismunandi íþróttamenn til að ná hámarks árangri. Ég hef náð því í 25 ár núna. En bak við þann sirkus er manneskja sem er líka eiginmaður, faðir og allt það og ég hef ekki verið sérstaklega góður í því. Þjálfarinn hefur verið mjög góður. Núna ætla ég að vera mjög góður eiginmaður og faðir. Svo fékk ég draumatilboð frá Íslandi sem ég gat ekki hafnað,“ sagði Vésteinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×