Knattspyrnumaðurinn Oskar Wasilewski hefur skrifað undir samning við Selfoss og mun leika með liðinu næstu tvö tímabil.
Oskar er uppalinn á Akranesi og lék með yngri flokkum ÍA. Hann hefur einnig leikið með Aftureldingu en spilaði síðast með Kára í heimabænum.
Hann hefur leikið 65 leiki í B, C og D-deildum Íslands. Varnarmaðurinn lék á sínum tíma fjóra leiki fyrir U18 ára landslið Íslands.