Elvar leikmaður mánaðarins

Elvar Már Friðriksson í Litháen.
Elvar Már Friðriksson í Litháen. Ljósmynd/Sveinn Helgason

Elvar Már Friðriksson var valinn leikmaður nóvembermánaðar í efstu deildinni í körfuknattleik í Litháen. 

Eftir erfiða byrjun á tímabilinu náði lið Elvars, Siauliai, að vinna fyrstu tvo leiki sína í deildinni á tímabilinu í nóvember. 

Elvar þótti fara fyrir liðinu í þessum leikjum og tölurnar hjá honum í nóvember eru ekkert slor: 18,5 stig að meðaltali og 9,5 stoðsendingar að meðaltali. 

Elvar er fyrsti Íslendingurinn sem leikur í efstu deild í Litháen þar sem körfuknattleikurinn er mjög vinsæll. Hann var fljótur að stimpla sig inn og vekur greinilega athygli. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert