Jóhanna Lea flýgur upp heimslistann

Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir, kylfingur úr GR.
Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir, kylfingur úr GR. Ljósmynd/EGA

Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir, kylfingur úr GR, fór upp um 274 sæti á heimslistanum yfir áhugakylfinga eftir að hafa komist alla leið í úrslit á Opna breska áhugamannamótinu í golfi í Kilmarnock í Skotlandi um síðustu helgi.

Þetta kemur fram á heimasíðu Golfsambands Íslands. Jóhanna Lea er nú í 670. sæti en var í síðustu viku í 944. sæti. Því er um ansi mikið hástökk að ræða.

Hin skoska Louise Duncan, sem bar sigurorð af Jóhönnu Leu í úrslitum mótsins síðastliðinn laugardag, stekkur einnig upp listann og er nú í 218. sæti eftir að hafa verið í 415. sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert