Pútín segir tæplega 5.000 hafa dáið í Nagorno-Karabakh Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 22. október 2020 21:14 Vladimír Pútín Rússlandsforseti. AP
Vladimír Pútín Rússlandsforseti segir að nærri fimm þúsund manns hafi látist í átökum Aserbaídsjan og Armeníu um héraðið Nagorno-Karabakh. Sú tala er mun hærri en ríkin tvö hafa í ljós látið. Pútín sagði þetta á fundi sem var sjónvarpaður í dag og sagðist hann ræða við bæði ríki oft á dag og hefur haldið því til haga að hann muni ekki taka afstöðu með öðru hvoru ríkinu í deilum þeirra um héraðið. Þetta kemur fram í frétt breska ríkisútvarpsins um málið. Þá sagði hann að yfirvöld í Moskvu séu ósammála tyrkneskum yfirvöldum – sem styðja Aserbaídsjan í deilunum – í afstöðu þeirra til deilnanna. Hann hefur einnig kallað eftir því að Bandaríkin aðstoði við að tryggja frið á svæðinu. Bæði Armenía og Aserbaídsjan hafa sakað hvort annað um að hafa brotið vopnahlé í Nagorno-Karabakh sem sett var á vegna mannúðarástæðna. Segja mun færri hafa látist Átök milli ríkjanna í héraðinu brutust út í september. Héraðið hefur lengi verið alþjóðlega samþykkt sem hluti af Aserbaídsjan en íbúar þess eru að mestum hlut Armenar, og snúast deilurnar að miklu leyti um þjóðerni íbúa þess. Átök á svæðinu hafa ekki verið meiri í rúm 25 ár eða frá því að sex ára stríði um landssvæðið lauk árið 1994 með vopnahléi. Rússland er í hernaðarbandalagi við Armeníu og er rússnesk herstöð staðsett þar í landi. Rússland á hins vegar ríka sögu og mikil tengsl við Aserbaídsjan en bæði ríkin voru hluti af Sovétríkjunum fyrir fall þeirra. „Dauðsföllin eru mun fleiri hjá báðum hliðum, meira en 2.000 hjá hvoru ríki,“ sagði Pútín á fundinum í dag og bætti hann við að dauðsföllin nálguðust fimm þúsund. Talan er mun hærri en þær sem Aserbaídsjan og Armenía hafa gefið út, og segja nýjustu dánartölur að dauðsföll séu færri en þúsund. Yfirvöld í Nagorno-Karabakh segja að 874 af hermönnum þeirra hafi fallið og 37 almennir borgarar frá því þann 27. september. Aserbaídsjan hefur gefið út að 61 aserskir borgarar hafi dáið en hafa ekki greint frá fjölda dáinna hermanna.
Aserbaídsjan Armenía Rússland Tengdar fréttir Vopnahlé brotið nokkrum mínútum eftir að það tók gildi Aserar og Armenar saka hvern annan um brot á vopnahléi sem átti að taka gildi á miðnætti í gærkvöldi. 18. október 2020 13:38 Armenía og Aserbaídsjan semja um vopnahlé Armenía og Aserbaídsjan hafa samið um vopnahlé í deilunum um héraðið Nagorno-Karabakh. 17. október 2020 21:46 Fluttu hjálpargögn en ekki vopn til Jerevan Fjölmiðlar í Aserbaídsjan segja að vopn hafi verið flutt frá Íslandi til Armeníu um helgina og hafa vísað til fragtflugvélar Icelandair sem flogið var frá Keflavík til Jerevan, höfuðborgar Armeníu. 13. október 2020 12:41 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Innlent Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Innlent Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Erlent Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Innlent Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Innlent Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Innlent Stutt í næsta gos komi til gosloka Innlent Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Erlent Friðrik skipaður sendiherra í Póllandi Innlent „Það er hart sótt að okkar fólki“ Innlent Fleiri fréttir Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Rostungur sem fannst í fyrra drapst af völdum fuglaflensu Hvetur Hamas til að ganga að rausnarlegum tillögum Ísrael Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Yousaf segir af sér sem ráðherra og formaður Skoska þjóðarflokksins Sánchez hættir við að segja af sér Grafið undan fjölmiðlafrelsinu víða í Evrópu Vopnahlé í sjónmáli? Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Fjölmenn mótmæli vegna ofbeldisbylgju í Ástralíu Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Þúsundir hvöttu Sánchez til að segja ekki af sér Skoða að færa Mónu Lísu í eigið herbergi Harvey Weinstein lagður inn á spítala Þingmaður hleypti af skoti fyrir utan skemmtistað Rýma dómshús vegna sprengjuhótunar Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Sjá meira
Vopnahlé brotið nokkrum mínútum eftir að það tók gildi Aserar og Armenar saka hvern annan um brot á vopnahléi sem átti að taka gildi á miðnætti í gærkvöldi. 18. október 2020 13:38
Armenía og Aserbaídsjan semja um vopnahlé Armenía og Aserbaídsjan hafa samið um vopnahlé í deilunum um héraðið Nagorno-Karabakh. 17. október 2020 21:46
Fluttu hjálpargögn en ekki vopn til Jerevan Fjölmiðlar í Aserbaídsjan segja að vopn hafi verið flutt frá Íslandi til Armeníu um helgina og hafa vísað til fragtflugvélar Icelandair sem flogið var frá Keflavík til Jerevan, höfuðborgar Armeníu. 13. október 2020 12:41