Gömul eldflaug SpaceX stefnir hraðbyr á tunglið Samúel Karl Ólason skrifar 26. janúar 2022 14:00 Talið er að eldflaugin muni brotlenda á myrku hlið tunglsins þann 4. mars. Vísir/Vilhelm Falcon 9 eldflaug sem starfsmenn SpaceX skutu út í geim frá Flórída árið 2015 virðist ætla að brotlenda á tunglinu á næstu vikum. Síðan þá hefur eldflaugin verið á fleygiferð í kringum jörðina og tunglið.
Við hefðbundnar kringumstæður er Falcon 9 eldflaugum lent aftur á jörðinni en það var ekki hægt í þessu tilfelli. Eldflaugin bar Deep Space Climate Observatory-gervihnöttinn út í geim en honum þurfti að koma í um milljón kílómetra fjarlægð frá jörðu, á svokallaðan Lagrange punkt-1. Lagrange-punktar eru sérstakir kyrrstöðupunktar sem verða til út frá þyngdarkrafti tveggja fyrirbæra sem hafa sömu þyngdarmiðjuna, eins og það er orðað á Vísindavefnum. Í þessu tilfelli eru fyrirbærin sólin og jörðin. James Webb geimsjónaukinn lauk í vikunni ferðalagi sínu til Lagrange punkts-2. Sjá einnig: James Webb kominn á áfangastað Áhugasamir geta kynnt sér Lagrange-punktana frekar og á myndrænan hátt hér á vef NASA. Þetta var í fyrsta sinn sem SpaceX sendi farm svo langt út í geim. Vegna þess hve langt þurfti að koma DSCO var ekki hægt að lenda eldflauginni aftur. Þó eldflaugin hafi farið langt, fór hún ekki nógu langt til að komast undan þyngdarafli jarðarinnar og tunglsins og hefur verið á ferð um svæðið frá 2015. Nú virðist þeirri ferð vera að ljúka. Jonathan McDowell er stjarnfræðingur við Harvard-háskóla. Hann segir brotlendinguna áhugaverða en ekkert merkilega. For those asking: yes, an old Falcon 9 second stage left in high orbit in 2015 is going to hit the moon on March 4. It's interesting, but not a big deal.— Jonathan McDowell (@planet4589) January 25, 2022 Í nýlegri grein á vef Ars Technica segir að sérfræðingar telji að eldflaugin muni brotlenda á tunglinu þann 4. mars. Ekki er talið að brotlendingin verði sjáanleg frá jörðinni þar sem eldflaugin mun líklegast skella á bakhlið tunglsins, um miðbaug þess. Gervihnettir sem eru á braut um tunglið gætu þó aflað upplýsinga um brotlendinguna, þó þeir muni líklega ekki fanga brotlendinguna sjálfa. Eldflaugin er um fjögur tonn að þyngd og ætti að skella á tunglinu á um 2,58 kílómetra hraða á sekúndu.
SpaceX Geimurinn Tunglið Tengdar fréttir Eini almyrkvi ársins séður úr geimnum og frá Suðurskautinu Eini almyrkvi ársins var eingöngu sýnilegur frá Suðurskautslandinu um helgina, eða úr geimnum þar sem hann var fangaður á mynd. 6. desember 2021 10:50 Það helsta í geimnum 2022: Aldrei meira um að vera í geimnum og leitin að lífi heldur áfram Vendingar í geimferðum og geimvísindum hafa verið miklar og hraðar á undanförnum árum og jafnvel sérstaklega í fyrra. Þessi þróun virðist ætla að halda áfram árið 2022 þar sem sífellt fleiri ríki og fyrirtæki koma sér fyrir á þessu sviði. 4. janúar 2022 08:01 Kvarta eftir að hafa þurft að færa geimstöðina vegna gervihnatta Musk Yfirvöld í Kína hafa kvartað til Sameinuðu þjóðanna eftir að gervihnettir á vegum SpaceX, geimfyrirtækis auðkýfingsins Elon Musk, voru nærri því að að klessa á kínversku geimstöðina á árinu. 28. desember 2021 08:07 Ruslahaugur á sporbraut: Hættan á stórslysi eykst sífellt Spútnik, fyrsta gervihnetti jarðarbúa, var skotið á loft frá Sovétríkjunum árið 1957. Síðan þá hefur þúsundum gervihnatta og annarra muna verið skotið á braut um jörðu. Mikil óreiða ríkir á sporbraut og gífurlegt magn svokallaðs geimrusls hefur myndast þar. 10. maí 2021 12:47 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Innlent Fico ekki talinn í lífshættu Erlent Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með Innlent Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Innlent Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Innlent „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Innlent Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Innlent Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Erlent Fleiri fréttir Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Fjöldi látinna á Gasa á reiki Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Ein blóðugasta kosningabarátta í manna minnum „Rússneskum lögum“ hraðað áfram þrátt fyrir hávær mótmæli Þrír menn ákærðir í Bretlandi vegna tengsla sinna við Hong Kong Staðfestir flokkun AfD sem öfgasamtaka Sló eigið met á Everest Kórónuveirufaraldurinn ekkert miðað við sýklalyfjaónæmi Sjá meira
Eini almyrkvi ársins séður úr geimnum og frá Suðurskautinu Eini almyrkvi ársins var eingöngu sýnilegur frá Suðurskautslandinu um helgina, eða úr geimnum þar sem hann var fangaður á mynd. 6. desember 2021 10:50
Það helsta í geimnum 2022: Aldrei meira um að vera í geimnum og leitin að lífi heldur áfram Vendingar í geimferðum og geimvísindum hafa verið miklar og hraðar á undanförnum árum og jafnvel sérstaklega í fyrra. Þessi þróun virðist ætla að halda áfram árið 2022 þar sem sífellt fleiri ríki og fyrirtæki koma sér fyrir á þessu sviði. 4. janúar 2022 08:01
Kvarta eftir að hafa þurft að færa geimstöðina vegna gervihnatta Musk Yfirvöld í Kína hafa kvartað til Sameinuðu þjóðanna eftir að gervihnettir á vegum SpaceX, geimfyrirtækis auðkýfingsins Elon Musk, voru nærri því að að klessa á kínversku geimstöðina á árinu. 28. desember 2021 08:07
Ruslahaugur á sporbraut: Hættan á stórslysi eykst sífellt Spútnik, fyrsta gervihnetti jarðarbúa, var skotið á loft frá Sovétríkjunum árið 1957. Síðan þá hefur þúsundum gervihnatta og annarra muna verið skotið á braut um jörðu. Mikil óreiða ríkir á sporbraut og gífurlegt magn svokallaðs geimrusls hefur myndast þar. 10. maí 2021 12:47