Gagnrýnir aðkomu Boga Nils að auglýsingu Kvenréttindafélagsins Elma Rut Valtýsdóttir skrifar 20. júní 2021 15:05 Auglýsing Kvennréttindafélags Íslands sem kom út í gær í tilefni kvennréttindadagsins. Sólveig Anna Jónsdóttir gagnrýnir aðkomu Boga Nils Bogasonar að auglýsingu Kvenréttindafélags Íslands. Hún sakar hann um að hafa leitt aðför gegn kvennastétt fyrir ári síðan.
Auglýsingin kom út í gær í tilefni kvenréttindadagsins. Í auglýsingunni má sjá áhrifamikla einstaklinga úr samfélaginu í endurgerð af þjóðþekkta málverkinu „Þjóðfundurinn“ eftir Gunnlaug Blöndal. Á þjóðfundinum stóðu á fimmta tug karlmanna á fætur og sögðu „Vér mótmælum allir“. Auglýsingastofan Brandenburg gaf auglýsinguna út og vakti hún talsverða athygli í gær. „Við skorum á okkur sjálf og ykkur öll að fjölga konum í áhrifastöðum og tryggja sömuleiðis jafnrétti og fjölbreytileika í ákvarðanatöku á öllum sviðum samfélagsins. Íslandi til heilla um alla framtíð,“ segir í auglýsingunni. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair er einn af þeim sem kemur fram í auglýsingunni. Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og aðgerðasinni, gagnrýnir aðkomu hans á Facebook síðu sinni. „Ömurleg aðför að kvennastétt“ Sólveig segir ekki vera nema rétt ár síðan Bogi Nils leiddi „eina ömurlegustu aðför að kvennastétt sem sést hefur í íslenskri vinnumarkaðs-pólitík, þegar að Icelandair og SA „union-böstuðu“ Flugfreyjufélag Íslands í miðri kjaradeilu“. „Eins og þið munið kannski var planið að fá karlastéttina flugmenn til að ganga í störf flugfreyja. Ég hefði sagt „Þetta mun aldrei gleymast“ en mig langar ekki að segja ósatt,“ segir Sólveig Anna. „Á Íslandi er ár afskaplega langur tími; á endanum skiptir mestu máli að sýna að „við erum öll í þessu saman“, sponsuð af Íslandsbanka og Landsvirkjun, öll í því saman að mótmæla einhverju, svo lengi sem það er bara nægilega yfirborðskennt og óljóst.“ Þá bendir Sólveig einnig á að hvorki henni né Agnieszku Ewu, varaformanni Eflingar, hafi verið boðið að vera með í auglýsingunni, þrátt fyrir að hafa skipulagt söguleg kvennaverkföll láglaunakvenna með góðum árangri.
Auglýsinga- og markaðsmál Jafnréttismál Icelandair Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Innlent Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: MenntaStefnumót í Reykjavík Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Sjá meira