Handbolti

Ágúst: Kraftur í þessu og þetta var góður handboltaleikur

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Ágúst var sáttur með sigurinn.
Ágúst var sáttur með sigurinn. Vísir/Hulda Margrét

„Mér fannst liðið bara sýna mikinn karakter,“ sagði sigurreifur Ágúst Jóhannsson, þjálfari Vals, eftir fjögurra marka sigur liðsins gegn KA/Þór í undanúrslitum Olís-deildar kvenna í handbolta.

„Það var á brattann að sækja bæði í fyrri hálfleik og seinni hálfleik. Við vorum eiginlega búin að ná þessu í hálfleik en gerum okkur svo sekar um mikið af tæknifeilum á fyrstu mínútunum í seinni hálfleik. En það var mikill karakter og öflug liðsheild sem skóp þennan sigur.“

Valskonur byrjuðu leikinn illa og lentu 7-1 undir snemma leiks. Ágúst segir liðið einfaldlega ekki hafa mætt tilbúið til leiks.

„Við vorum bara ekki tilbúin, því miður. Við vorum staðar, gerum tæknifeila og hlaupum illa til baka og þær bara keyra á okkur og fengu galopin færi hvað eftir annað. En við náðum svo að þétta aðeins raðirnar og koma okkur hægt og rólega inn í leikinn.“

„Ég ætla að vona að þetta sé ekki eitthvað andlegt þegar við erum komin í undanúrslit. Þetta eru skemmtilegustu leikirnir. Það eru mikil meiðsli í liðinu en þær sýndu það í seinni hálfleik að karakterinn er mikill. Við spiluðum á mörgum leikmönnum og það var mikil orka seinustu 15 mínúturnar. En mér fannst leikurinn líka bara skemmtilegur og það var gott tempó í honum.“

Gestirnir að norðan breyttu um taktík í síðari hálfleik og fóru í sjö á sex, en Ágúst var ánægður með hvernig sitt lið leysti það.

„Það er engin ein svona patent lausn á þessu sjö á sex. Það þurfa bara allir að bæta fimm til tíu prósentum við sig og stelpurnar voru bara mjög vinnusamar og við fengum góða markvörslu. Við náðum svo að pressa þær aðeins í hraðaupphlaupunum og seinni bylgjunni.“

„Það var gaman að sjá stelpurnar. Það var kraftur í þessu og þetta var góður handboltaleikur. Ég hlakka til að fara í leikinn á laugardaginn.


Tengdar fréttir

Leik lokið: Valur - KA/Þór 30-26 | Valskonur einum sigri frá úrslitum

Valskonur unnu góðan fjögurra marka sigur er liðið tók á móti Íslandsmeisturum KA/Þórs í undanúrslitum Olís-deildar kvenna í handbolta í kvöld, 30-26. Valskonur leiða nú einvígið 2-1 og þurfa því aðeins einn sigur í viðbót til að fara í úrslit.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×