Afskrifaði 194 milljóna skuld Leicester

Úr leik karlaliðs Leicester City gegn Newcastle United í síðasta …
Úr leik karlaliðs Leicester City gegn Newcastle United í síðasta mánuði. AFP/Paul Ellis

Aiyawatt Sri­vadd­hanapra­bha, stjórn­ar­formaður enska knatt­spyrnu­fé­lags­ins Leicester City, hef­ur ákveðið að af­skrifa skuld­ir fé­lags­ins til King Power In­ternati­onal, eig­anda þess. Sri­vadd­hanapra­bha-fjöl­skyld­an á KPI.

Ekki var um neina smá­pen­inga að ræða held­ur 194 millj­ón­ir punda.

Skuld þessi hef­ur hangið yfir Leicester í nokk­urn tíma og gert karlaliðinu erfitt fyr­ir, ekki síst á leik­manna­markaðnum þar sem liðið hef­ur ekki farið mik­inn und­an­farið ár.

Aðeins einn leikmaður, Wout Faes, var keypt­ur síðastliðið sum­ar en tveir varn­ar­menn, Harry Soutt­ar og Victor Kristian­sen, voru keypt­ir í janú­ar­glugg­an­um án þess að þörf hafi verið á því að selja aðra leik­menn fyrst, líkt og var raun­in síðasta sum­ar þegar Wesley Fof­ana var seld­ur til Chel­sea fyr­ir 70 millj­ón­ir punda.

Sri­vadd­hanapra­bha sagði í til­kynn­ingu að ástæðan fyr­ir af­skrift skuld­ar­inn­ar væri fyrst og fremst sú að tryggja það að hag­ur fé­lags­ins yrði sem vænst­ur til framtíðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert