Óvissustigi almannavarna vegna Covid-19 aflýst

Þrátt fyrir að almannavarnarstigi vegna Covid-19 sé nú aflýst hérlendis …
Þrátt fyrir að almannavarnarstigi vegna Covid-19 sé nú aflýst hérlendis þá er sjúkdómurinn enn til staðar bæði hér og erlendis. mbl.is/Árni Sæberg

Ríkislögreglustjóri í samráði við sóttvarnalækni hefur ákveðið að aflýsa óvissustigi almannavarna vegna heimsfaraldurs Covid-19. Almannavarnastig vegna Covid-19 hafa verið í gildi frá 27. janúar 2020 þegar óvissustigi var fyrst lýst yfir vegna nýrrar kórónuveiru. Fá þeim tíma hafa almannavarnastig ýmist verið á óvissu-, hættu- eða neyðarstigi allt eftir stöðu faraldursins.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá ríkislögreglustjóra og sóttvarnalækni.

Faraldurinn í rénun

Fram kemur, að almannavarnastig skilgreini alvarleika og umfang þeirrar hættu sem steðji að á hverjum tíma. Í heimsfaraldri sé unnið eftir viðbragðsáætlun vegna heimsfaraldurs en hana er hægt að virkja á þremur stigum: Óvissustigi, hættustigi eða neyðarstigi. Markmið virkjunar áætlunar sé að tryggja samhæfð viðbrögð aðila.

Atburðarás í heimsfaraldri er mjög breytileg og sveigjanleiki við notkun viðbragðsáætlunar er því nauðsynlegur. Í lok apríl 2022 var almannavarnastig síðast fært af hættustigi niður á óvissustig. Á óvissustigi þykir ástæða til aukinnar árvekni og ítarlegs áhættumats og þegar faraldur er á uppleið eru ýmsar ráðstafanir gerðar. Nú er faraldurinn í rénum bæði hérlendis og í öðrum löndum og ástandið verið nokkuð stöðugt síðan um áramót.

Ekkert nýtt afbrigði komið fram í eitt ár

Ekkert nýtt afbrigði Covid-19 hefur komið fram í rúmlega ár, íbúar á Íslandi eru vel bólusettir og innlögnum á sjúkrahús hefur fækkað. Þá hafa engar opinberar aðgerðir verið í gangi síðan í lok febrúar 2022.

Þrátt fyrir að almannavarnarstigi vegna Covid-19 sé nú aflýst hérlendis þá er sjúkdómurinn enn til staðar bæði hér og erlendis. Samantekt um stöðu Covid-19 á Íslandi í síðustu viku sýnir m.a. að í hverri viku er fólk á spítala með sjúkdóminn. Fyrir utan veikindi og afleiðingar þeirra þá voru 246 andlát skráð vegna Covid-19 frá 2020 til 2022. Í janúar 2023 voru 13 andlát en í febrúar hefur eitt andlát verið skráð (bráðabirgðatölur), segir í tilkynningunni. 

Covid enn yfirlýstur heimsfaraldur

„Covid-19 er enn yfirlýstur heimsfaraldur og enn talinn ógn við lýðheilsu í heiminum samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni. Aðrir sjúkdómar sem slíku ástandi hefur verið lýst yfir fyrir frá árinu 2005 eru inflúensa H1N1 (svínaflensa), mænusótt, zíkaveira, ebóla (tvisvar) og apabóla. Þó dregið hafi úr aðgerðum vegna Covid-19 í flestum löndum er faraldurinn enn í gangi með tilheyrandi veikindum, andlátum og álagi á heilbrigðiskerfi. Vöktun, eftirlit og viðbrögð við Covid-19 verða áfram með sama hætti og vegna annarra smitsjúkdóma sem sóttvarnalæknir vaktar. Ef tilefni er til verður viðbragðsáætlun vegna heimsfaraldurs virkjuð á ný á viðeigandi almannavarnastigi.

Upplýsingar sóttvarnalæknis um Covid-19 á Íslandi munu nú færast alfarið yfir á vef embætti landlæknis af covid.is, s.s. um viðbrögð, bólusetningar og tölfræði. Þá hefur embætti landlæknis sett upp sérstakt mælaborð með upplýsingum um umframdánartíðni á Íslandi og Covid-19 andlát,“ segir jafnframt. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert