Góðar fréttir fyrir Selfyssinga

Hulda Dís verður hjá Selfossi næstu árin.
Hulda Dís verður hjá Selfossi næstu árin. Ljósmynd/Selfoss

Handknattleikskonan Hulda Dís Þrastardóttir hefur framlengt samning sinn við uppeldisfélagið Selfoss til næstu þriggja ára.

Hulda hefur verið lykilmaður í liði Selfoss undanfarin ár og átti sinn þátt í að liðið vann 1. deildina sannfærandi eftir fall úr efstu deild á síðustu leiktíð.

„Huldu þarf vart að kynna, en hún hefur verið lykilmaður í liði Selfoss undanfarin ár. Það verður spennandi að sjá Huldu Dís í Olísdeildinni að nýju með spennandi Selfossliði,“ segir m.a. í tilkynningu félagsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert