Uppgjör kynslóðanna í úrslitaleik Vodafone-deildarinnar Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 20. nóvember 2020 10:31 Bjarni og félagar í Dusty ætla sér sigur á Hafinu í úrslitaleik Vodafone-deildarinnar. dusty
Á sunnudaginn mætast ungt lið Dusty og reynsluboltarnir í Hafinu í úrslitaleik Vodafone-deildarinnar í CS:GO. „Ég er bara mjög spenntur og hlakka til að spila,“ sagði Bjarni Þór Guðmundsson, fyrirliði Dusty, í samtali við Vísi. „Í átta liða úrslitunum mættum við Samviskunni og Þór í undanúrslitunum. Við unnum alla leikina okkar. Við unnum 2-0 á móti Þór sem var erfiður leikur og líka 2-0 á móti Samviskunni sem var létt,“ sagði Bjarni um leið Dusty í úrslitaleikinn. Eins og áður sagði eru Bjarni og félagar ungir að árum. Þrír í liði Dusty eru nítján ára og tveir tvítugir. Á meðan eru leikmenn Hafsins talsvert eldri. „Við erum langyngstir í Vodafone-deildinni,“ sagði Bjarni. „Við erum að fara að spila á móti gaurum sem hafa spilað í fimmtán ár.“ Reynslumiklir þrátt fyrir ungan aldur Aðspurður hvort líta megi á úrslitaleikinn á sunnudaginn sem eins konar kynslóðauppgjör í íslenska CounterStrike heiminum segir Bjarni svo vera. „Já, það mætti segja það. Við erum allt öðruvísi spilarar. Þeir ólust upp á allt öðrum tíma en við. Það er samt ekki hægt að segja að það sé munur á reynslu þar sem við höfum verið í öllum úrslitum sem hafa verið undanfarin tvö og hálft ár,“ sagði Bjarni. „Það er einhver munur á okkur en við höfum spilað lengi en á lægra stigi.“ Bjarni segir að kjarninn í liði Dusty hafi spilað saman síðan í ágúst á síðasta ári. Hann hafi sjálfur byrjað að spila seinni hluta árs 2015 en hinir í liðinu fyrr. Viðureign Hafsins og Dusty verður í beinni útsendingu á Stöð 2 eSport á sunnudagskvöldið. Útsendingin hefst klukkan 18:00.
Rafíþróttir Vodafone-deildin Mest lesið Mari Järsk sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Gat ekki staðið upp til að taka við bikarnum Sport „Maður hefur verið milli tannanna á fólki síðan maður var ungur“ Íslenski boltinn Mari meyr eftir sigurinn Sport Adam hundfúll og Arnar beint í símann Íslenski boltinn Áflogaseggir fá ekki að mæta aftur á völlinn Körfubolti Sjáðu aukaspyrnumark Gylfa, umdeildan rangstöðudóm og rauðu spjöldin Íslenski boltinn Uppgjör, viðtöl og myndir: Breiðablik - Valur 2-3 | Manni færri héldu gestirnir út Íslenski boltinn Uppgjör: Valur - Njarðvík 68-67 | Ekki fallegt en það telur Körfubolti „Arnar fór langt yfir strikið“ en nafni hans oftar með dónaskap Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fjölbrautaskóli Suðurlands sigurvegarar Framhaldsskólaleikanna Ungmennamótið í rafíþróttum hafið Fjórða vika Rocket League deildarinnar í fullum gangi í kvöld 6. umferð GR Verk deildarinnar lokið: Tæknilegir örðugleikar í deildinni Sjötta umferð GR Verk deildarinnar í kvöld: Þórsarar í efsta sæti Úrslitin ráðast í kvöld: FSu gefst tækifæri á að hreppa sinn fyrsta FRÍS bikar Mikil spenna í GR Verk deildinni: Þórsarar með stórsigur gegn DUSTY GR Verk deildin heldur áfram í kvöld Þórsarar og Dusty enn jafnir á toppnum Íslenska Rocket League-deildin farin af stað GR Verk-deildin í beinni: Þórsarar enn ósigraðir Fjölbrautaskóli Suðurlands mætir Tækniskólanum í úrslitum FSu og FG keppast um úrslitasæti gegn Tækniskólanum Þórsarar enn ósigraðir á tímabilinu Tækniskólinn kominn í úrslit Framhaldsskólaleikanna Fragg-bræðurnir efna til sumarmóts Sjá meira
Uppgjör, viðtöl og myndir: Breiðablik - Valur 2-3 | Manni færri héldu gestirnir út Íslenski boltinn
Uppgjör, viðtöl og myndir: Breiðablik - Valur 2-3 | Manni færri héldu gestirnir út Íslenski boltinn