Berlusconi aftur á þing eftir áratugs fjarveru Kjartan Kjartansson skrifar 27. september 2022 11:21 Berlusconi með kærustu sinni, Mörtu Fascina, á kjörstað í Mílanó á sunnudag. Fascina náði einnig kjöri til þings. AP/Antonio Calanni Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, tekur sæti á ítalska þinginu í fyrsta skipti í tæpan áratug eftir að meirihluti kjósenda í Monza greiddi honum atkvæði um helgina. Berlusconi var bannað að gegna opinberu embætti vegna dóms sem hann fékk fyrir skattsvik.
Þrátt fyrir að Áfram Ítalía, flokkur Berlusconi, hafi tapað fylgi frá síðustu kosningum stóð hann sig betur en kannanir bentu til. Í Monza á Norður-Ítalíu hlaut forsætisráðherrann fyrrverandi meira en fimmtíu prósent atkvæða til öldungadeildarsætis. Hann á knattspyrnulið borgarinnar sem komst nýlega upp í efstu deild. Berlusconi, sem er 86 ára gamall, var vísað úr öldungadeildinni eftir að hann hlaut dóm fyrir skattsvik sem tengdist fjölmiðlaveldi hans árið 2013. Var honum bannað að gegna opinberu embætti í sex ár. Eftir að honum var leyft að bjóða sig fram aftur náði hann sæti á Evrópuþinginu árið 2019. Tveir flokkar sem eru enn lengra til hægri en Áfram Ítalía voru sigurvegarar kosninganna á Ítalíu um helgina. Fastlega er gert ráð fyrir að Giorgia Meloni, leiðtogi Bræðralags Ítalíu, verði forsætisráðherra í fyrstu stjórn róttækrar hægrimann frá því að fasistaforinginn Benito Mussolini stýrði landinu í síðari heimsstyrjöldinni. Berlusconi segist ætla að beita áhrifum sínum til að draga úr öfgum hinna bandalagsflokkanna tveggja, Bræðralags Meloni og Bandalags Matteo Salivnis. Marta Fascina, 32 ára gömul kærasta Berlusconi, náði einnig kjöri til þings um helgina. Hún vann sæti í neðri deild þingsins fyrir Marsala á Sikiley þrátt fyrir að hún hefði aldrei látið sjá sig þar í kosningabaráttunni. Hún hefur sagst hafa komið til Sikileyjar með föður sínum í frí þegar hún var barn. Berlusconi gegndi embætti forsætisráðherra í þrígang. Síðast hrökklaðist hann úr embættinu í skugga alvarlegrar fjármálakreppu og ásakana um að hann hefði greitt unglingsstúlku fyrir kynlíf árið 2011.
Ítalía Kosningar á Ítalíu Tengdar fréttir Talaði við rétta fólkið og sagði réttu hlutina Ítalir vildu breytingar og Giorgia Meloni varð niðurstaðan. Þetta segir ítalskur doktorsnemi sem hefur ekki þungar áhyggjur af uppgangi þjóðernispopúlisma í heimalandi sínu. 26. september 2022 21:18 „Ítalía valdi okkur“ Flokkarnir á hægri vængnum á Ítalíu ættu að vera með meirihluta í báðum deildum þingsins en kosningar þar í landi fóru fram í gær. Giorgia Meloni, leiðtogi Bræðra Ítalíu, fagnaði sigri í sjónvarpsávarpi í nótt en hún gæti orðið fyrsti kvenkyns forsætisráðherrann á Ítalíu og fyrsti öfgahægri ráðherrann frá því að Mussolini var við völd. 26. september 2022 07:22 Allt útlit fyrir mikinn sigur hægri-öfga afla á Ítalíu Útgönguspár gera ráð fyrir því að hægri-öfgakonan Giorgia Meloni og flokkur hennar hafi sigrað í ítölsku þingkosningunum í dag. Allt útlit er fyrir að hún verði fyrsti kvenforsætisráðherra landsins. 25. september 2022 23:30 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent Svipar til gamalla óupplýstra rána Innlent Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Innlent „Trúði því ekki að þetta væri ég“ Innlent Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Innlent Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Innlent Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Innlent Stjórnmálamaðurinn Joe Lieberman látinn Erlent Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Innlent Segir árásarmennina hafa ætlað til Belarús Erlent Fleiri fréttir Fundu lík tveggja verkamanna sem voru á brúnni Stjórnmálamaðurinn Joe Lieberman látinn Segir árásarmennina hafa ætlað til Belarús Taíland skrefinu nær því að leyfa samkynja hjónabönd Dómararnir virtust efast um réttmæti málsins gegn FDA Skammar lögreglu fyrir að nota lego til að dylja andlit sakborninga Japanskt fyrirtæki skiptir ungbarnableyjum út fyrir fullorðinsbleyjur Þeir sem fóru í ána taldir látnir Sakar Bandaríkjamenn og Breta um aðkomu að árásinni Kenna öryggisráðinu um „galnar“ kröfur Hamas Skipið varð vélarvana rétt áður en það hafnaði á brúnni Segja minnst sjö bíla hafa fallið í ána Assange verður ekki framseldur strax Leita fólks í ánni eftir að brúin hrundi Hverjir eru ISKP? Skæðasti angi Íslamska ríkisins teygir anga sína til Moskvu Strangtrúaðir æfir yfir því að verða mögulega skikkaðir til herþjónustu Brú hrundi eftir árekstur í Baltimore Gerðu húsleit hjá Diddy í Los Angeles og Miami Beinir spjótunum enn að Úkraínu Stórmál fari Ísrael ekki eftir ályktun öryggisráðsins Netanjahú í fýlu við Biden Lækka trygginguna meðan Trump áfrýjar Öryggisráð SÞ samþykkir ályktun um vopnahlé á Gasa Heita hefndum en freista þess enn að bendla Úkraínu við árásina Vísindamenn vilja friðlýsa vísindalega mikilvæg svæði á tunglinu Sagrada Familia verði loks tilbúin árið 2034 Flóttamannaaðstoðinni meinað að koma birgðum til hrjáðra Fjórir menn fyrir dómara vegna hryðjuverkanna Simon Harris nýr leiðtogi Fine Gael Sleppti pálmasunnudagsprédikun á síðustu stundu Sjá meira
Talaði við rétta fólkið og sagði réttu hlutina Ítalir vildu breytingar og Giorgia Meloni varð niðurstaðan. Þetta segir ítalskur doktorsnemi sem hefur ekki þungar áhyggjur af uppgangi þjóðernispopúlisma í heimalandi sínu. 26. september 2022 21:18
„Ítalía valdi okkur“ Flokkarnir á hægri vængnum á Ítalíu ættu að vera með meirihluta í báðum deildum þingsins en kosningar þar í landi fóru fram í gær. Giorgia Meloni, leiðtogi Bræðra Ítalíu, fagnaði sigri í sjónvarpsávarpi í nótt en hún gæti orðið fyrsti kvenkyns forsætisráðherrann á Ítalíu og fyrsti öfgahægri ráðherrann frá því að Mussolini var við völd. 26. september 2022 07:22
Allt útlit fyrir mikinn sigur hægri-öfga afla á Ítalíu Útgönguspár gera ráð fyrir því að hægri-öfgakonan Giorgia Meloni og flokkur hennar hafi sigrað í ítölsku þingkosningunum í dag. Allt útlit er fyrir að hún verði fyrsti kvenforsætisráðherra landsins. 25. september 2022 23:30